31desember

Smá annáll fyrir 2009

Svona í tilefni að þetta er seinasti dagur ársins þá ætla ég að skrifa hér smá svona annál fyrir 2009.

Janúar - þá var fyrsta stór afmælið í fjölskyldunni, hún mamma varð fimmtug og því var fagnað á góðan hátt. Gott matarboð með fiskisúpu, gjöfum og víni og endað á dansiballi á Players.

Febrúar - þá fórum við Tinna ásamt nokkrum af mínum hressu vinnufélögum og fórum í vélsleðaferð upp á Langjökul. Ragga vinkona átti afmæli.

Mars - annað stór afmæli, ég varð 25 ára. Því var fagnað með familíunni á Tapas barnum. Síðan helgina eftir þá fórum við mannfræði vinirnir norður til Akureyrar sem var rosalega skemmtilegt fyrir utan heimferðina sem tók rúmlega 9 tíma og endaði með stórum árekstri.

Apríl - var eitthvað rólegur og voða lítið gerðist hér.

Maí - þá fór ég ásamt nokkrum úr vinnunni í dagsferð til Eskifjarðar. Það var mjög gaman, keyrðum þarna um allt, gengum upp að saltbergsnámu og veiddum á sjóstöng. Ekki má gleyma að minnast á skemmtilega 90s ballið á Nasa sem við fórum á Magga, Kári og Magda ásamt fleirum og þau skildu mig eftir í bænum. Síðan var líka hið merkilega 30 ára afmælið hennar Önnu Siggu með pönk ívafi. Það var rosalega skemmtilegt.

Júní - var frekar rólegur. Ragga vinkona útskrifaðist úr félagsráðgjöfinni og hélt svaka veislu. Kristín vinkona varð 25 ára.

Júlí - þá var hið stór skemmtilega ættarmót á Látrum. Við systur lögðum í rúmlega 10 daga ferðalag með mikilli keyrslu, tjaldvist og miklum göngum.

Ágúst - var frekar leiður mánuður er hægt að segja. Harpa snéri aftur til DK eftir að hafa eytt smá af sumrinu hérna. Ragga flutti út til Noregs og Ólöf flutti til Bandaríkjanna. Ég varð ein eftir á klakanum.

September - byrjaði í MA námi í mannfræði upp í HÍ. Bryndís litla skott varð 20 ára. Þýðir það að hún er ekki lengur litla skott? Tinna átti líka afmæli og er bara nokkrum mánuðum frá því að vera komin á fertugs aldurinn.

Október - ég flutti að heiman. Fór að leigja hérna á Lindargötunni og komst af því að mér finnst æðislegt að vera farin að heiman og búa ein. Vinnan flutti í nýtt húsnæði og mannabreytingar voru gerðar.

Nóvember - var frekar rólegur og fór bara í að klára skólann að mestu leiti.

Desember - kláraði fyrstu önnina í MA náminu. Fór á tónleika með Eivöru í Fríkirkjunni. Þeir voru alveg æðislegir. Ragnheiður frænka varð stúdent og tilkynnti að hún er að fara flytja til Bretlands í nokkra mánuði til að vinna. Svo komu jólin og núna er 2009 að líða undir lok.

Þegar ég lít til baka finnst mér alltaf eins og ég hafi ekki gert neitt mikið á árinu en þegar maður skrifar þetta svona niður þá kemur í ljós að ég hef gert alveg helling. Ég hlakka til nýja ársins og vona að það verður jafn gott og þetta gamla. Ef ekki betra.

Hrabba out for 2009!
31. desember 2009 klukkan 15:58
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
30desember

Desember lok

Jólin voru bara ágætt þetta árið. Kláraði að skila öllum ritgerðum og verkefnum í vikunni áður og svo var bara verið að vinna. Fengum frí eftir hádegi á Þorláksmessu sem var alveg æðislegt. Þá var bara skundað heim eftir að hafa náð í einn pakka þar sem ég hafði í raun klárað allt deginum áður það sem ég ætlaði að gera fyrir utan það sem var á dagskrá á aðfangadag. Þar sem jólin snúast mikið um át og heimsóknir þá naut ég þess að gera ekki neitt á Þorlák. Var bara heima að slappa af og horfa á nokkrar bíómyndir. Á aðfangag renndi ég til hennar Kristínar með pakka og svo var haldið áfram til mömmu en þar eyddi ég mest öllum jólunum. Aðfangadagskveld var bara haldið heima og fengum rosalega góðan kalkún, fyllingu og allt sem því fylgir og svo var opnað pakkaflóðið. Ég fékk alla stóru pakkanna undan trénu. Ég fékk brauðristina sem mig langaði svo mikið í og margt fleira inn á heimilið. Amma fékk lang flestu pakkanna. Svo virðist sem börn og gamalmenni fá flesta pakka. Fyndið hvað þetta dvalar út svona á miðjum aldri en eykst aftur því eldri sem þú verður. Jóladagur var bara heima hjá ömmu. Ekkert farið út úr húsi. Trausti, Marín og Sunna komu í hangikjet og síðan vorum við pínd til að horfa á jólatónleika með Björgvini Halldórssyni. Annar í jólum var hið árlega jólaboð ömmu og afa haldið hjá Bylgju systir pabba. Þar fengum við mjög góðan hamborgarahrygg og sérrí frómas og svo var spilað fram eftir kveldi. Annars var jólahátíðinni mikið eydd í svefn, sjónvarpsgláp og át.

Núna á milli jóla og nýárs hef ég bara verið að vinna og reyna að snúa sólarhringnum við en það gengur frekar erfiðlega þessa daganna. Þótt maður vakni snemma til að fara í vinnu þá er mjög erfitt að fara að sofa á kveldin þótt maður sé dauðþreyttur. Maður er að hanga á Facebook, horfa á eitthvað eða lesa fram eftir öllu. Síðan vaknar maður alveg ógeðslega ósofin og hræðilega þreytt. Hlakka til á morgun þá getur maður sofið aðeins lengur. Vonandi fer ég bara að sofa á skikkalegum tíma í kveld.

Í gær skelltum við systur okkur á myndina Avatar. Fórum á hana í 3D þannig við sátum ásamt restina af salnum eins og einhverjir furðufuglar með skemmtileg gleraugu. Ég óskaði þess mjög mikið að hafa verið með myndavél og geta náð mynd af þessu öllu saman. Ég veit ekki alveg hvað mér fannst um myndina um leið, fyrir utan það að mér fannst ég vera að horfa soldið á nútíma Pocahontas mynd um leið og ég var búin að sjá hana en mér fannst hún alveg rosalega flott og þetta er mjög góð mynd. En eftir að hafa sofið á henni og fengið að melta þetta aðeins þá komst ég að þeirri niðurstöðu að mér fannst hún bara mjög skemmtileg og falleg saga. Það eru mikil og merkileg skilaboð í henni sem allir ættu að taka til sín. Ég mæli alveg hiklaust með þessari mynd nema að sitja með svona 3D gleraugu krefst einbeitningar, sérstaklega ef sjónin er ekki alveg í lagi og þú mátt búast við hálfgerði þynnku daginn eftir. Nema þetta sé bara eitthvað tilfallandi fyrir mig eina. Eftir að gera nánari rannsókn á því.


Á morgun eru áramótin. Þetta ár er búið að líða alveg rosalega hratt. Ég ætla að byrja daginn kannski á vinnu, er enn ekki búin að ákveða hvort ég kíki aðeins á skrifstofuna, annars verður kveldinu eydd hjá mömmu þar sem maður fer að borða eitthvað enn þá meira og svo vonandi spilum við eitthvað. Þurfum að vígja spilið sem ég fékk í jólagjöf.

Á þessum nótum þá óska ég ykkur gleðilegs nýrs árs og gangið hægt um gleðinnar dyr annað kveld.


Hrabba out!

30. desember 2009 klukkan 11:00
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
10desember

Desember update

Núna hef ég búið ein í rúma þrjá mánuði og ég verð að viðurkenna að mér finnst það æðislegt. Auðvitað finnst mér leiðinlegt að hafa mömmu og systurnar ekki svona rosalega nálægt en það er samt bara ágætt. Komin tími til að slíta þeirri sambúð enda er maður orðin það fullorðinn.

Að búa svona ein hefur kennt mér ýmislegt um sjálfan mig. Mér finnst rosalega leiðinlegt að vaska upp og enn leiðinlegra að hugsa um þvottinn og ég er bara ein. Hvernig verður það þegar maður er komin með fleiri inn á heimilið. Ég veit ekki hvernig það verður. Kannski læt ég einhvern annan sjá um þvottinn. Ég verð samt að viðurkenna að mér þykir mjög gaman að elda og prufa nýja rétti en því miður nenni ég því of sjaldan.

En þrátt fyrir þetta allt saman finnst mér æðislegt að búa hérna heim og hefja þennan kafla í lífi mínu.

Skólinn er að klárast þessa önnina. Aðeins tvær ritgerðir eftir sem ég þarf að skila. Eftir það getur maður farið í smá jólaskap. Maður er samt alltaf að vinna líka en það er bara gaman. Það er skemmtilegur andi í vinnunni sem gerir þetta bara allt skemmtilegt. Núna á laugardaginn erum við mamma og Tinna að fara á tónleika með henni Eivöru í Fríkirkjunni. Ég held að það verði rosalega gaman og jólalegt. Síðan framundan eru tvö jólahlaðborð. Ekki það að það er næstum jólahlaðborgð á hverjum degi í vinnunni. Maður á eftir að koma vaggandi út úr desember. Eins gott að maður eigi kort í ræktinni og að maður fari að nota það á nýju ári.



En held að þetta sé komið nóg ætla að halda áfram að læra.

Hrabba out!


10. desember 2009 klukkan 20:34
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
2 athugasemdir
09desember

Skemmtilegir punktar um lífið

Hin 90 ára gamla Regina Brett frá Ohio - skrifaði þessi 45 atriði um það sem lífið hafði kennt henni:

1. Lífið er ekki sanngjarnt, en það er samt ljúft

2. Þegar þú ert í vafa, taktu þá bara lítið skref

3. Lífið er of stutt til að eyða tíma í að hata einhvern

4. Vinnan þín mun ekki sjá um þig þegar þú verður veik(ur). Vinir þínir og fjölskylda munu gera það. Vertu því í sambandi við þau.

5. Greiddu kreditkortareikninginn þinn í hverjum mánuði

6. Þú þarft ekki að vinna öll deilumál - samþykktu að vera ósammála

7. Gráttu með einhverjum. Það er betra en að gráta einn

8. Það er allt í lagi að reiðast út í guð.- - - Hann þolir það

9. Safnaðu fyrir elliárunum og byrjaðu með fyrsta launaseðlinum

10. Þegar kemur að súkkulaði, þá er mótstaða árangurslaus

11. Semdu frið um fortíðina, þannig að hún eyðileggi ekki samtíðina

12. Það er í lagi að láta börnin þín sjá þig gráta

13. Berðu ekki þitt líf saman við annarra. Þú hefur ekki hugmynd um hvernig þeirra líf er

14. Ef samband þarf að vera leynilegt, þá áttu ekki að vera í því

15. Allt getur breyst á augabragði. En hafðu ekki áhyggjur

16. Dragðu andann djúpt að þér - það róar hugann

17. Losaðu þig við allt sem ekki er nýtilegt, fallegt eða skemmtilegt

18. Það sem ekki drepur þig gerir þig bara sterkari

19. Það er aldrei of seint að hafa skemmtilega barnæsku. En sú seinni er alveg undir þér komin og engum öðrum

20. Þegar kemur að því að sækjast eftir því sem þú elskar við lífið, taktu þá aldrei Nei sem svar

21. Brenndu kertin, notaðu fínu rúmfötin, farðu í fínu nærfötin. - - - Sparaðu þetta ekki fyrir sérstök tilefni - Í dag er sérstakt tilefni

22. Undirbúðu þig ávallt vel - láttu svo strauminn taka þig

23. Vertu óvenjuleg(ur) í dag - - - Bíddu ekki eftir gamals aldri til að klæða þig í fjólubláan lit !

24. Mundu að mest áríðandi kynfærið er heilinn

25. Enginn ræður yfir hamingju þinni nema þú

26. Rammaðu inn allar svokallaðar þjáningar með orðunum . . . . „Mun þetta skipta einhverju máli eftir 5 ár" ?

27. Hafðu lífið alltaf að leiðarljósi

28. Fyrirgefðu öðrum allt

29. Það sem aðrir hugsa um þig kemur þér alls ekki vð

30. Tíminn læknar svo til allt. . . . Gefðu tímanum tíma

31. Hversu gott eða slæmt sem ástandið er,. . . þá mun það breytast

32. Taktu þig ekki of hátíðlega, . . . enginn annar gerir það

33. Trúðu á kraftaverk

34. Guð elskar þig vegna þess hver hann er, ekki vegna þess sem þú gerðir eða gerðir ekki

35. Endurskoðaðu ekki lífið, . . Vertu til staðar og taktu þátt í því

36. Að verða gamall er betra en hinn kosturinn - - - að deyja ungur

37. Börnin þín fá bara eina barnæsku

38. Allt sem skiptir máli í lokin er að þú hafir elskað

39. Farðu út á hverjum degi , - - kraftaverk bíða alls staðar

40. Ef við myndum öll kasta áhyggjum okkar í stafla og sæjum stafla hinna, . . þá myndum við hrifsa okkar til baka

41. Öfund er tímasóun.- - - Þú hefur nú þegar allt sem þú þarfnast

42. Það besta er ef til vill einnig ókomið

43. Það skiptir ekki máli hvernig þér líður, - - - farðu á fætur, klæddu þig og sýndu þig.

44. Láttu undan

45. Lífið er ekki skreytt með slaufum, - - en samt er það gjöf

 

Mér finnst sumt af þessu sniðugt og á pottþétt eftir að nýta mér eitthvað af þessum punktum.

09. desember 2009 klukkan 13:10
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
04desember

Dimmur dagur í desember

Ég held að það sé komið á smá blogg hér. Það getur ekki alltaf verið föstudagurinn þréttándi hjá okkur. Eins og þið sjáið þá er bloggið komið í jólafötin. Þá er allt komið í jólafötin nema ég sjálf. Í gær þreif ég íbúðina mína hátt og lágt og er hún komin í gott stand fyrir jólin. Búin að skreyta og svona líka. Fínt að vera búin að þrífa áður en maður sest við ritgerðargerð, þá getur maður andað léttar og svona aðeins strokið af fyrir jól. Núna á ég bara eftir að koma í veg fyrir að ég fari í jólaköttinn. Veit ekki alveg hvað verður gert í þeim máium.

Tæknilega er skólinn búinn hjá mér er samt að fara í einn aukatíma núna á mánudaginn og svo er bara skrif skrif skrif. Ég fer nefnilega ekki í nein jólapróf heldur þarf ég að skila 2 ritgerðum í staðinn. Stundum langar mig að sleppa þessum ritgerðum og fara bara í próf. Held stundum að það sé aðeins léttara.

Á þriðjudaginn er svo snyrtidagur ársins. Eftir vinnu fer ég í klippingu og litun og svo seinna um kveldið fer ég í plokkun til hennar Önnu Siggu. Ég ætla sko að vera sæt um jólin. Maður þarf svona aðeins að dekra við sig.

Jólagjafakaup ganga hægt en þau ganga aðeins. Er búin að kaupa nokkrar en búin að ákveða flest allar aðrar. Þá er bara að fara og kaupa þær sem fyrst þannig það er búið. Ég þarf svo líka að fara klára þessi jólakort sem ég ætlaði mér að föndra. Er búin með þrjú, ætlaði að föndra aðeins fleiri.

Síðan 12 desember er ég, mamma og Tinna að fara á hana Eivöru í Fríkirkjunni. Það verða eflaust mjög skemmtilegir tónleikar. Fínt að fara á smá tónleika fyrir jólin. Gera eitthvað svona öðruvísi. Síðan eru 2 jólahlaðborð, kannski fleiri kemur í ljós.

Desember er busy. Reyni að leyfa ykkur að fylgjast með.

Hrabba out!
04. desember 2009 klukkan 10:24
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
Engin athugasemd
12nóvember

Föstudagurinn þrettándi

Á morgun er föstudagurinn þrettándi. Þrettándi dagur mánaðarins sem lendir á föstudegi. Það er mjög algengt að litið sé á föstudag sem óhappa dag þar sem margir sorglegir atburðir hafa gerst á föstudegi í gegnum söguna. Hér á Íslandi litið á hann til fjár. Þrettán er líka tala sem er tengd við óhöpp. Þannig ef að þrettándi dagur mánaðarins lendir á föstudegi hlýtur það að þýða óhappa dagur.
Ekki eru til margar skriflegar heimildir um það afhverju föstudagurinn þrettándi er óheilla dagur en til eru munnlegar heimildir og sögulegir atburðir til að styðja óheillina á þessum degi.
Litið hefur verið á töluna 13 sem óhappa tölu sérstaklega í talnaspeki. Það eru 12 mánuðir í árinu, 12 stjörnumerki, klukkan sýnir einungis 12 stundir, Ísrael hefur 12 upprunalega ættbálka, Jesú hafði 12 lærisveina og það voru 12 guðir á Olympus fjalli. Talan þrettán var ekki talin passa og setti allt úr skorðum.
Föstudagur hefur líka verið talin óhappadagur, alveg síðan á 14. öld og eflaust lengur. Það er ekki mælt með því að hefja ferð á föstudegi eða ný verkefni sem passar ekki alveg við íslenska hef en margir hræðilegir atburðir hafa gerst á föstudögum.

• Föstudagurinn svarti þegar verðbréfamarkaðurinn féll á 19. öld.
• Jesús var krossfestur á föstudegi.
• Fall Konstantínsnópels lenti á föstudegi.

Margir náttúruhamfarir hafa gerst á föstudegi eða á þrettánda degi einhvers mánaðar.

Eins og með öllu þá er til norræna míta um afhverju föstudagar eru óheilladagar. Hér áður fyrr var föstudagur nefndur eftir Frigg, gyðju frjósemis og ástar. Þegar kristnin tók yfir þá var lagt böl á Frigg og hennar tileinkun og hún var stimpluð sem norn og rekin í útlegð. Talið var að hún ásamt ellefu öðrum nornum og djöfulinn sjálfur, þrettán saman hittust þau á hverjum föstudegi og plönuðu alla þá slæmu hluti sem áttu að gerast í komandi viku. Út frá þessu þá var föstudagur þekktur sem dagur nornarinnar í Skandinavíu.

Í dag þá höldum við ekki eins sterkt í hjátrú og við höfum gert í gegnum aldirnar. En einhvern veginn þá erum við alltaf meðvituð um þennan dag og förum varlega og reynum að koma í veg fyrir kringumstæðum sem gætu talist til óhappa. Miðað við að þessi dagur er svona sterkur og það að uppruni hans kemur frá norðrinu þá er fyndið að við lítum á föstudag sem heilladag.

12. nóvember 2009 klukkan 22:47
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
31október

Blaður

Jæja nú er sko alvaran hafin þessa önnina. Betra seint en aldrei. Það er nú ekki mikið eftir af henni hjá okkur. Er í tveimur áföngum þessa önnina, mikil vinna öðrum sem hefur verið alla önnina sem maður hefur klórað fram úr sér en hinn áfanginn er meira svona sjálfslesnámskeið. Sem ég hef því miður ekki verið eins dugleg að grúska í og hinum. Á dagskránni er kynning um ritgerð og byrja á og klára tvær ritgerðir, þannig maður á eftir að sitja mikið við tölvuna, langt fram eftir degi og í öllum frítímum.

Auðvitað er ég enn í vinnu hjá Fosshótelum þar sem miklar breytingar hafa verið undafarið. Nýr yfirmaður og ný skrifstofuaðstæða and me like. Mér lýst bara vel á þetta allt saman og ég er spennt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér vinnulega séð. Enda er allt samstarfsfólk mitt mesta gæðablóð.

Annað sem er í fréttum er að ég er flutt að heiman. Tata!! Komin tími til. Ég fékk inn á stúdentagarða á Lindargötunni og flutti þar í byrjun október. Ég er að fíla það að búa ein og búa bara ég sjálf. Stutt í bæinn og svona. Gestir eru velkomnir.

Núna þessa helgi þá er komið rúmt ár síðan ég fór að heimsækja Hörpu og Þór í Danmörku og ég væri svo alveg til í að vera fara þangað aftur núna. Það er alltaf svo gott að koma í heimsókn til þeirra. Ég sakna líka Röggu minnar í Norge sérsaklega í gær þar sem ég var búin að planta mér fyrir framan imbann með nammi og svona því hversu oft höfum við ekki gert það saman að horfa á einhverjar stelpumyndir með gos og nammi.

Jæja ætla að halda áfram að grúska í heimildum um víkingaskip sem var grafið upp í Oseberg í Noregi.

Hrabba out!

31. október 2009 klukkan 14:08
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
2 athugasemdir
20ágúst

Hrabba varð ein eftir á klakanum

Jæja góðir hálsar þá er haustið að nálgast. Þegar maður kíkir út um gluggann þá er orðið meira grátt og skýjað, öll flögg eru að flagga í þessum mikla vindi, gangstéttirnar eru flestar rakar eftir nætur rigninguna og það er farið að kólna. Fyrir mér þá kemur Verslunarmannahelgin alltaf með haustið. Eftir hana þá fer fólk að klára sumarvinnuna, gera sig til fyrir skólann og þeir sem eru búnir að vera í sumarfríi fara að tígja sig aftur í vinnuna. Hér í vinnunni þá fer álagið aðeins að minnka og maður fer að vinna í þeim málum sem hafa setið aðeins á hakanum og reynir að afrétta sumarið.

Núna fer maður að minnka við sig vinnu til að klára ritgerð og hefja skólann. Skólinn á að byrja núna 31. ágúst og maður fer í nokkra tíma með það hugarfar að maður fái að halda áfram. Einnig verður maður að vinna í vetur til að geta lifað af á þessum gráum tímum í íslensku samfélagi. Með skólanum og öðrum tilfallandi breytingum vona ég að mínir gráir tímar fari að vera aðeins ljósari. Spennt fyrir nýjum tímum og nýjum stöðum á vonandi eftir að hjálpa.

Vinir og vandamenn hafa horfið eins og dögg fyrir sólu núna á seinustu dögum. Ragga og Fúsi eru flutt til Noregs og var það mjög erfitt að kveðja hana Röggu mína. En það gefur manni bara tækifærið til að fara heimsækja Noreg einhvern tímann í nánustu framtíð. Harpa mín er flogin aftur til Danmerkur þar sem hún sjálf er að fara setjast á skólabekk í staðinn fyrir að vera algjör heimavinnandi húsmóðir. Ekki það ég veit að hún á eftir að sakna þess að vera bara heima að dunda sér í staðinn fyrir að vera með nefið ofan í bók.

Ólöf mannfræði vinkona er svo að láta drauma sína rætast þessa daganna og þetta ferðalag hennar er svo sannarlega spennandi. Hún komst inn í háskólann í Indiana í Bandaríkjunum og er farin þangað til að stunda framhaldsnám í líffræðilegri mannfræði. Hún er búin að vera núna úti í viku og það hefur verið mjög gaman að fylgjast með henni að fóta sig í íkornalandi. Það verður mjög gaman að koma að heimsækja hana einhvern tímann á þeim árum sem hún verður þarna.

Mitt ferðalag hefst í bili núna í HÍ. Hver veit nema einn daginn verð ég sjálf á ókunnguri slóð að rita upplifun mína og pælingu?
20. ágúst 2009 klukkan 12:30
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
3 athugasemdir
27júlí

M:maðr

Það eina sem gildir núna er skýr hugsun og vilji til að breyta.
Vertu lítillátur, trúr og hófsamur.
Þetta er tími mikillar grósku ef þú nýtur vinnunnar verksins vegna og kannt að lifa í núinu.


27. júlí 2009 klukkan 10:52
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
Engin athugasemd
30júní

Nokkrir dagar í sumarfrí og ég get ekki beðið

Sumarfríið fer alveg að bresta á hjá mér og ég get ekki beðið. Það er alveg nauðsynlegt að taka sér smá frí frá vinnu svona annars lagið.

Sumarfríinu mínu verður eydd á Vestfjörðum. Amma á akkúrat Heimabæ og við ætlum að fara og vera þar í nokkra daga og svo er einmitt ættarmót um helgina þannig við ætlum að taka það líka. 

Við verðum í húsinu með græna þakinu. Ég hlakka svo til það verður gaman að vera þarna að slappa af og æðislegt. Ég vona bara að veðrið verður gott.

Það verður farið upp á bjarg


Og vonandi keyrt eitthvað meira um firðina. Eflaust heimsótt ættfólkið á Rauðasandi



Ég hlakka svo til. Ég hlakka svo til.

VestfarðarHrabba out!
30. júní 2009 klukkan 11:20
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...