Hrabba varđ ein eftir á klakanum
Jæja góðir hálsar þá er haustið að nálgast. Þegar maður kíkir út um gluggann þá er orðið meira grátt og skýjað, öll flögg eru að flagga í þessum mikla vindi, gangstéttirnar eru flestar rakar eftir nætur rigninguna og það er farið að kólna. Fyrir mér þá kemur Verslunarmannahelgin alltaf með haustið. Eftir hana þá fer fólk að klára sumarvinnuna, gera sig til fyrir skólann og þeir sem eru búnir að vera í sumarfríi fara að tígja sig aftur í vinnuna. Hér í vinnunni þá fer álagið aðeins að minnka og maður fer að vinna í þeim málum sem hafa setið aðeins á hakanum og reynir að afrétta sumarið.Núna fer maður að minnka við sig vinnu til að klára ritgerð og hefja skólann. Skólinn á að byrja núna 31. ágúst og maður fer í nokkra tíma með það hugarfar að maður fái að halda áfram. Einnig verður maður að vinna í vetur til að geta lifað af á þessum gráum tímum í íslensku samfélagi. Með skólanum og öðrum tilfallandi breytingum vona ég að mínir gráir tímar fari að vera aðeins ljósari. Spennt fyrir nýjum tímum og nýjum stöðum á vonandi eftir að hjálpa.
Vinir og vandamenn hafa horfið eins og dögg fyrir sólu núna á seinustu dögum. Ragga og Fúsi eru flutt til Noregs og var það mjög erfitt að kveðja hana Röggu mína. En það gefur manni bara tækifærið til að fara heimsækja Noreg einhvern tímann í nánustu framtíð. Harpa mín er flogin aftur til Danmerkur þar sem hún sjálf er að fara setjast á skólabekk í staðinn fyrir að vera algjör heimavinnandi húsmóðir. Ekki það ég veit að hún á eftir að sakna þess að vera bara heima að dunda sér í staðinn fyrir að vera með nefið ofan í bók.
Ólöf mannfræði vinkona er svo að láta drauma sína rætast þessa daganna og þetta ferðalag hennar er svo sannarlega spennandi. Hún komst inn í háskólann í Indiana í Bandaríkjunum og er farin þangað til að stunda framhaldsnám í líffræðilegri mannfræði. Hún er búin að vera núna úti í viku og það hefur verið mjög gaman að fylgjast með henni að fóta sig í íkornalandi. Það verður mjög gaman að koma að heimsækja hana einhvern tímann á þeim árum sem hún verður þarna.
Mitt ferðalag hefst í bili núna í HÍ. Hver veit nema einn daginn verð ég sjálf á ókunnguri slóð að rita upplifun mína og pælingu?
20. ágúst 2009 klukkan 12:30
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir

knús þín frænkos :D