Desember lok

Jólin voru bara ágætt þetta árið. Kláraði að skila öllum ritgerðum og verkefnum í vikunni áður og svo var bara verið að vinna. Fengum frí eftir hádegi á Þorláksmessu sem var alveg æðislegt. Þá var bara skundað heim eftir að hafa náð í einn pakka þar sem ég hafði í raun klárað allt deginum áður það sem ég ætlaði að gera fyrir utan það sem var á dagskrá á aðfangadag. Þar sem jólin snúast mikið um át og heimsóknir þá naut ég þess að gera ekki neitt á Þorlák. Var bara heima að slappa af og horfa á nokkrar bíómyndir. Á aðfangag renndi ég til hennar Kristínar með pakka og svo var haldið áfram til mömmu en þar eyddi ég mest öllum jólunum. Aðfangadagskveld var bara haldið heima og fengum rosalega góðan kalkún, fyllingu og allt sem því fylgir og svo var opnað pakkaflóðið. Ég fékk alla stóru pakkanna undan trénu. Ég fékk brauðristina sem mig langaði svo mikið í og margt fleira inn á heimilið. Amma fékk lang flestu pakkanna. Svo virðist sem börn og gamalmenni fá flesta pakka. Fyndið hvað þetta dvalar út svona á miðjum aldri en eykst aftur því eldri sem þú verður. Jóladagur var bara heima hjá ömmu. Ekkert farið út úr húsi. Trausti, Marín og Sunna komu í hangikjet og síðan vorum við pínd til að horfa á jólatónleika með Björgvini Halldórssyni. Annar í jólum var hið árlega jólaboð ömmu og afa haldið hjá Bylgju systir pabba. Þar fengum við mjög góðan hamborgarahrygg og sérrí frómas og svo var spilað fram eftir kveldi. Annars var jólahátíðinni mikið eydd í svefn, sjónvarpsgláp og át.

Núna á milli jóla og nýárs hef ég bara verið að vinna og reyna að snúa sólarhringnum við en það gengur frekar erfiðlega þessa daganna. Þótt maður vakni snemma til að fara í vinnu þá er mjög erfitt að fara að sofa á kveldin þótt maður sé dauðþreyttur. Maður er að hanga á Facebook, horfa á eitthvað eða lesa fram eftir öllu. Síðan vaknar maður alveg ógeðslega ósofin og hræðilega þreytt. Hlakka til á morgun þá getur maður sofið aðeins lengur. Vonandi fer ég bara að sofa á skikkalegum tíma í kveld.

Í gær skelltum við systur okkur á myndina Avatar. Fórum á hana í 3D þannig við sátum ásamt restina af salnum eins og einhverjir furðufuglar með skemmtileg gleraugu. Ég óskaði þess mjög mikið að hafa verið með myndavél og geta náð mynd af þessu öllu saman. Ég veit ekki alveg hvað mér fannst um myndina um leið, fyrir utan það að mér fannst ég vera að horfa soldið á nútíma Pocahontas mynd um leið og ég var búin að sjá hana en mér fannst hún alveg rosalega flott og þetta er mjög góð mynd. En eftir að hafa sofið á henni og fengið að melta þetta aðeins þá komst ég að þeirri niðurstöðu að mér fannst hún bara mjög skemmtileg og falleg saga. Það eru mikil og merkileg skilaboð í henni sem allir ættu að taka til sín. Ég mæli alveg hiklaust með þessari mynd nema að sitja með svona 3D gleraugu krefst einbeitningar, sérstaklega ef sjónin er ekki alveg í lagi og þú mátt búast við hálfgerði þynnku daginn eftir. Nema þetta sé bara eitthvað tilfallandi fyrir mig eina. Eftir að gera nánari rannsókn á því.


Á morgun eru áramótin. Þetta ár er búið að líða alveg rosalega hratt. Ég ætla að byrja daginn kannski á vinnu, er enn ekki búin að ákveða hvort ég kíki aðeins á skrifstofuna, annars verður kveldinu eydd hjá mömmu þar sem maður fer að borða eitthvað enn þá meira og svo vonandi spilum við eitthvað. Þurfum að vígja spilið sem ég fékk í jólagjöf.

Á þessum nótum þá óska ég ykkur gleðilegs nýrs árs og gangið hægt um gleðinnar dyr annað kveld.


Hrabba out!

30. desember 2009 klukkan 11:00
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
Harpan skrifar ...
Gleðilegt nýtt ár sæta frænka :*
knús í hús :*
30. desember 2009 klukkan 15:23

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...