Hver erum við?

22. október 2006 klukkan 04:35
Enginn af okkur sýnir okkar rétta andlit. Allir hafa eitthvað að fela. Hvað er það sem við erum að fela? Feimni, óöryggi, lygar, þjáningu og sársauka, leyndarmál, allt sem við höfum mistekist í? Ætli við vitum sjálf hver við erum í raun og veru?

Allir lifa í sínum eigin fantasíu heimi, þessa ákveðna mynd sem við erum búin að mála og allir aðrir sjá hana. Nema við sjálf. Okkur finnst alltaf okkar eigin verk ekki vera nógu góð. Þannig við höldum áfram með verkið reynum að laga það og bæta en á endanum höfum við gengið svo langt að verkið er ónýtt. Við munum ekki lengur hvernig upprunalega verkið leit út. Það upprunalega var ekki okkur eigin spegilmynd hvort sem er. Þegar við erum börn erum við í byrjun hrein og bein en síðan byrjum við snemma að mála þessa mynd. Myndin klárast aldrei en einn daginn vitum við að myndin er ónýtt og það tekur okkur álíka langan tíma að losa um og eyða þessari mynd. Þannig í raun erum við búin að týna sjálfum okkur og við finnum okkur aldrei heil aftur. Ég efast um að helmingurinn af okkur viti hver  við erum í raun. Við  erum alltaf að koma sjálfum okkur á óvart. Hvað þá öðru fólki.

Við finnum ýmsa þætti af okkur sjálfum sem við púslum saman. Stundum eiga þeir ekki saman hlutirnir og það tekur vinnu að laga þá þannig þeir passa. Lífið er ekkert nema vinna við að fá þessa hluti til að passa saman. Ég veit allavega að á hverjum degi reyni ég að vinna við að fá þessa hluti til að passa saman og reyna að mála nýja mynd, heiðarlega mynd í stað þessa ónýtu sem ég hafði sett saman í öll þessi ár. En það er rosalega erfitt, það erfitt að stundum virðist ég ekki geta farið fram úr suma daga, vil bara liggja undir sæng og þurfa ekki að hitta neinn. En á hverjum degi sparka ég í sjálfa mig og dreg mig framúr. Það er miserfitt en samt alltaf erfitt. En það er samt alltaf jafn gott að leggjast aftur í rúmið eftir hvern dag því ég fór úr því til að byrja með.

Lífið mitt hefur ekki verið neitt dans á rósum, kannski fyrstu 14 árin en seinustu 8 hafa verið frekar erfið. Ég átti frábæra fjölskyldu og við fluttum á hina hliðina á jörðinni. Þar kynntist ég frábæru fólki og slæmu fólki líka, var í góðu og slæmu sambandi, en síðan virtist þetta allt hrynja þegar mér var tilkynnt að við ætlum að flytja aftur heim en faðir minn verður eftir. Það er eitt það erfiðasta sem ég hef gert, að skilja hann þarna eftir þá og í hvert sinn sem ég fer út. Við byggðum upp nýja fjölskyldu hérna heima og var það ekki auðvelt á köflum en það hefur tekist vel og hinum megin á hnettinum á ég aðra fjölskyldu sem mér þykir líka alveg rosalega vænt um. Námið hefur gengið vel, vinnur hafa fengist auðveldlega, ég get keypt mér flesta þá hluti sem mig langar í, ég keyri um á mínum eigin bíl og bý á heimili sem ég verð ávallt velkomin á. Sambönd hafa ekki verið mörg seinustu ár en fjölda drengja hafa spilað sig inn í mitt líf, mismunandi erfiðir strákar og mismikið grátið yfir hverjum og einum. Einn eða tveir hafa átt flest mín tár. Það hefur tekið tíma að bygga upp lífið mitt eins og það er í dag. Háskólanemi, frábæran vinahóp, ágæta fjölskyldu og markmið sem ég stefni straumlaust að. Ég veit svona nokkurn veginn hver ég er en það hefur tekið langan tíma, svita og bókstaflega blóð að komast af því hver ég í raun er. Ekki það að ég viti það en eitt veit og það er að ég er

Hrafnhildur heimsfaraldri með ör eftir ljón!

I am still here

18. október 2006 klukkan 03:56
Októberfest og Kvennóhittingur er liðinn. Í dag er þriðjudagur og ég held að það sé dagur 3 í þynnku. Allavega hef ég verið voðalega slöpp í dag og hef ekki getað litið í bók. En samt tókst mér einhvernveginn að taka til í herberginu mínu og þrífa það allt. Er í raun ánægðari með það heldur en að sitja í tíma í dag og ekki gera neitt í 3 tíma. Á morgun á ég stefnumót við mikinn lærdóm en veit ekki alveg hvort ég verði bara heima eða á Hlöðunni.

Helgin var rosalega skemmtilegt. Þetta alle sammen.

Ég er ekkert smá heilalaus þessa stundina vildi bara láta vita að ég er á lífi...næstum því.

Hrabba WAY out!

Föstudagurinn 13

13. október 2006 klukkan 16:31
Föstudagurinn 13 hefur alltaf verið spennandi fyrirbæri. Í sumum samfélögum er hann talinn vera góður, í trúarbrögðum tengist hann ofast einhverju sérstöku, í kristni væri hægt að tengja hann við Jesú og lærisveinanna 12 samtals eru þeir 13 en við þurfum að líta á þennan dag sem einhver óhappa dag. Afhverju er það?

Á miðvikudaginn hófst Októberfest. Ég lét ekki sjá mig upp í tjaldi enda sat ég heima og lærði langt fram eftir nóttu. Í gær var síðan stúdentagangan Vér meðmælum öll! Hún tókst vel að mínu mati og ég er stolt af því að hafa tekið þátt. Við þurfum að vekja athygli á þessu málefni og fá það inn á þing því við þurfum fjármagn. Gæti haldið endalaust áfram um þetta málefni en held að ég láti þetta duga. Skrapp niður í skóla í gærkveldi og kíkti í tjaldið. Hitti þar fullt af fólki sem ég þekki og endaði á að tylla mér hjá henni Ernu Maríu og sötraði einn bjór. Lét mig hverfa soldið snemma enda mikil helgi framundan.

Í kveld erum við í mannfræðinni að fara hittast á Pravda, fá okkur bjór og pizzur. Síðan ætlum við að rölta upp í tjald og fá okkur enn meiri bjór. Það vonandi verður stuð. Á morgun er síðan Kvennóhittingur. Gaman verður að sjá alla gömlu krakkanna aftur. Þarf að fara í Smáralind á morgun og finna eitthvað til að vera í. Hmmm Óákveðinn

Jæja ætla að snúa mér aftur að bókunum. Fínt að læra í svona þrjá tíma enn áður en ég fer að slappa af og byrja á pínu stemmara fyrir kveldið.

Hrabba Oktoberfest out!

Update af kynlífi Hrútsins og helginni

09. október 2006 klukkan 01:01
Hrútur(21.mars - 19.apríl)
Hrúturinn nálgast kynlífið eins og allt annað í lífinu: hvatvís og kappsfullur. Hann er opinn fyrir öllu en elskhugi hans ætti ekki að spyrja hann um morgundaginn því hann er ekki fyrir kynferðislega einokun.
- Sængurver úr silki eða satín eflir hvatir hrútsins
- Rómantískur, ástríðufullur, kynferðislegur og lostafullur
- Kröfuharður og fyrir honum er rúmið orustuvöllur nánast
- Elskhugi hrútsins þarf að þola sálrænt ástand og geta sætt sig við þá orku sem fylgir reiði og ákveðni og ekki síður orku ástarinnar
- Líkar vel að skreyta rúmið með óteljandi púðum
- Næmur, heiðarlegur og hefur óbeit á uppgerð í rúminu
- Þolir ekki að láta sér leiðast
- Hann er hvetjandi og drífandi.
- Hann tilheyrir eldmerki: trygglyndur og örlátur á atlot og strokur
- Hann þarfnast félaga sem er jafn ákveðinn og hann í rúminu

Rakst á þetta á netinu um daginn. Fannst þetta mjög fyndið. Ekki vissi ég að ég væri svona í rúminu. Svalur Sumt af þessu verð ég samt að mótmæla. Silki og satín rúmföt er ég ekkert voðalega hrifin af því mér verður auðveldlega kalt. Að skreyta rúmið með púðum höfðar ekkert rosalega mikið til mín þar sem mér finnst hundleiðinlegt að raða þeim á og hvað þá að taka þá af þegar ég er þreytt eða eitthvað annað í gangi.  Samt gaman að þessu. Hérna upp í vinstra horninu eru restin af stjörnumerkjunum ef þið viljið endilega kíkja á ykkar.

Helgin er bara búin að vera sú rólegasta. Á föstudaginn var bjórkveld hjá mannfræðinni á Pravda. Húsið var pakkað af háskólanemum og hitti ég fullt af fólki sem ég hef ekki séð í langan tíma. Eins og hana Guðríði mína úr Kvennó. Hún var hress eins og hún er vanalega. Gaman að hitta hana og spjalla við hana. Það komu nokkrir úr mannfræðinni og kynntumst við fleiri nýnemum. Alltaf gaman að hitta fólk sem er með mér í námi. Það var 2svar sinnum söngkeppni um kveldið og við unnum í seinna skipti og unnum fötum af Tuborg. Hlæjandi Við erum best! Þegar leið á kveldið fækkaði á staðnum en þá kom Raggan mín og heilsaði upp á mig. En ég var frekar leiðinleg og fór bara stuttu eftir að hún og Heiðdís komu. Var orðin frekar þreytt og þurfti líka að fara skúra daginn eftir kl 10. Ekki það skemmtilegasta sem hægt er að gera á laugardagsmorgni.

Laugardagurinn fór í vinnu síðan smá lærdóm en eftir hádegi kom Trausti með litla Aron og Sunnu og ekkert meir varð gert á þeim degi. Var bara heima og hafði það rólegt og dagurinn í dag er búinn að vera mjög svipaður. Of löt til að læra og of pirruð út í sjálfan mig fyrir að vera ekki að læra eða taka til eða eitthvað svoleiðis.

Jæja ætla að reyna ganga frá þessari fatahrúgu sem nær að myndast í hverri einustu viku. Veit bara ekki hvernig ég fer að þessu. Þarf að ganga frá henni svona tvisvar til þrisvar í viku en samt myndast hún alltaf og stærri í þokkabót. Svona er þegar maður þarf að fara í nokkur outfit til að athuga hvað hentar best og að mála sig. Málningardót út um allt.

Hrabba out!

Shakespeare og formennska

03. október 2006 klukkan 03:29
Ó mig auman...

Var ekki einhver frægur sem sagði það? Kannski einhver úr Shakespeare leikriti. Allavega ekki úr þeim sem ég hef lesið. To be or not to be er það mesta sem ég get munað úr þeim.

Held að ég er komin í therapíu hjá námsráðgjafanum mínum. Óákveðinn Veit ekki alveg afhverju. En það er ágætt sérstaklega þar sem hann er að hjálpa mér við skipulagningu mína og gott að fá utan aðkomandi sjónarhorn á sumum hlutum.

Lífið gengur annars vel. Þarf reyndar að leggja mig aðeins meira við námið. Það gengur hægt en gengur samt. Er að bæta við mig á hverjum degi sem er alveg frábært.

Er að fara á svona stóran formannsfund á fimmtudaginn. Með öllum formönnum nemendafélaganna í HÍ og ég hef ekki hugmynd um hvað ég er að gera þar. Hef aldrei verið á svona formlegum fundum áður. Það er verið að setja í einhver ráð og blabla, held að besta leiðin er að sitja hljóð á þessum fundi. Held að það sé gott plan.

Jæja áður en hausverkurinn minn verður mikið meira ætla ég að drífa mig í rúmið. Langur dagur framundan og svona.

Hrabba out


Blablabla

29. september 2006 klukkan 15:58
Það er komin flöskudagur, föstudagur, frídagur hvað sem er. Allavega það er komin helgi. Reyndar ekki fyrr en eftir kl 6 í dag þegar ég verð búin að skúra. Sit núna á hlöðunni með henni Röggu minni að reyna læra en það gengur frekar illa.

Morguninn byrjaði frekar illa. Ætlaði á hlöðuna bara strax kl 8:15 en nei þurfti ég ekki að sofa yfir mig þannig ég var ekki komin fyrr en eitthvað um 9 og gat ekki farið í sturtu. Hentist bara í einhver föt og hljóp út með töskuna í einni og skyrdrykk í hinni. Ekki gaman að byrja daginn svona, enda sit ég líka eins og algjör mygla á bókasafninu.

Reyndar er ég búin að lesa 10 bls þannig ég get ekki mikið kvartað en það hefur tekið sinn tíma. Síðan þarf ég að fara byrja á ritgerðunum mínum og einu verkefni sem ég á að skila í byrjun nóvember. Oh my god það er alltof mikið að gera.

Jæja ætla að lesa smá í viðbót áður en við Ragga förum í kakó og köku pásu!

Hrabba out!

Kapítalismi

26. september 2006 klukkan 17:17
Kapítalískt kerfi hefur gert góða hluti. Það er búið að búa til svokallað heimssamfélag og komið með miklar tækni- og iðnnýjunga og skapað pening fyrir samfélagið. En hvert fer þessi peningur? Hann fer bara til nokkra ríkra kalla sem eiga megin hlutann af markaðnum á með við vinnuaflið, eða öreigarnir eins og Marx kallaði okkur, fáum ekki neitt.  Nema gleðina yfir að vinna og skapa eitthvað nýtt sem við fáum ekki einu sinni að eiga. Ég held að það sé komin tími til að reyna minnka þennan kapítalisma sem er í heiminum í dag en hvernig eigum við að fara að því? Ef einhver vissi það held ég að hann hafi reynt. Kannski ef við hjálpumst öll að getum við skipt sköpum. Pæliði í því!

ARG!!!

25. september 2006 klukkan 16:12
Loksins er komin net í þessa stofu þannig maður getur gert eitthvað annað en að fygjast með í tíma. En það er kannski slæmt að einhverju leiti sérstaklega þar sem þetta er svona tími sem maður þarf virkilega að fylgjast með þannig ekki láta ykkur bregða ef ég verð ekki í sambandi á mánudögum fyrir hádegi. Þá verð ég í tíma með stílabók og penna.

Ég er orðin gráhærð og já ég meina gráhærð út af þessum helvítis póstum. Er búin að vera koma upp outlookinu mínu og gekk það vel eða þannig fyrr en ég kom í skólann þá virtist þetta vera að ganga eitthvað. Loksins jei en síðan er ég að stofna Homo reikning og þá hverfur bara allt úr innboxinu hjá mér. Öskrandi Er ekki sátt því ef ég vil skoða innboxið mitt þá signast ég út úr MSN. Ég er ekki að skilja þetta og er ógeðslega svöng og súper pirruð yfir þessu þannig ef einhver getur hjálpað mér þá er það vel þegið og ég mun sitja niður á kaffistofu í Aðalbyggingu til kl 13. Hjálp er vel þegin.

Hrabba out.

Hallúúúú

23. september 2006 klukkan 19:17
Góðan og blessaðan daginn. Var vöknuð kl 9 í morgun alveg eins og í gærmorgun en í staðinn fyrir að vera bara heima og gera mest lítið dreif ég mig á Hlöðuna og var komin hingað um kl hálf 11. Er búin að sitja og lesa og er orðin frekar þreytt núna og ætla að fara koma mér heim. Þarf reyndar fyrst að fara í Smáralindina og kaupa afmælisgjöf handa henni Tinnu en síðan heim að taka til og vonandi halda áfram að læra.

Vikan er búin að vera eitthvað rosalega fljót að líða og hefur mikið verið gert en minnst af því er að læra.

Við settum saman nýja nemendastjórn og fengum til liðs við okkur nokkra af nýnemunum og lýst mér bara vel á þetta og held að þetta eigi eftir að ganga vel í vetur.

Jæja vildi bara vita að ég lifði af tímann þarna á þriðjudaginn með því að labba út og allt er í lagi með mig.

Hrabba out!

19. september 2006 klukkan 16:11
Please kill me áður en þessi kennari gerir það!

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...