Ferðasagan til Danmerkur

08. desember 2008 klukkan 18:35
Það var á laugardagskveldi með hvítvínsflösku sem ég og Harpa vorum að spjalla saman sem leiddi til þess að ég keypti flugmiða til Köben eina helgi í enda október.

Föstudaginn 31. október, nánar tiltekið á Hrekkjavöku. Það var vaknað snemma, klárað að pakka og keyrt svo út á flugvöll. Þar sem ég var svona stutt þá kostaði það minna að keyra sjálf og geyma bílinn þarna heldur en að láta einhvern keyra mig. Kom upp á völl allt gekk vel þar. Settist niður og keypti morgunmat. Meðan ég sat og var að borða kemur íslenska karla handbolta landsliðið og sest allt í kringum mig. Fínt útsýni meðan ég kláraði morgunverðinn minn. Flugið gekk vel og var frekar fljótt þar sem ég svaf eiginlega allt flugið. Magga úr vinnunni hafði hjálpað mér að kaupa lestarmiða til Århus þannig ég þurfti ekki að hafa áhyggjur af því að vera kaupa lestarmiða. Í staðinn fór ég bara og fékk upplýsingar um hvort ég ætti að fara til að taka rétta lest. Á meðan ég var að bíða fékk ég mér bara að birða. Loksins var kominn tími til að fara í lestina og halda á áfangastað. Lestarferðin var í rúma þrjá tíma og stoppaði á mörgum stöðum. Gaman var að fylgjast með útlitinu og bæjunum en eftir nokkur stopp og nokkra bæi þá var þetta eiginlega allt eins og ég var orðin frekar þreytt. Langaði bara að vera komin til Århus og hitta hana Hörpu mína. Loksins var komið á áfangastað og ég gekk og út og fylgdi straumnum út af lestarstöðinni. Tók greinilega eitthvað shortcut því ég lenti ekki inn á lestarstöðinni heldur á hjólaplatforminu. Hringdi í Hörpu og eftir nokkrar lýsingar föttuðum við hvar ég var og þurfti í raun bara að labba yfir götuna og þá var ég komin. Þótt að Harpa var ekki búin að vera lengi í DK þá var mjög gott að hitta hana og gefa henni einn góðan knús því ég sakna vinkonu minnar. Það var mjög gaman að sjá Kolbrúnu Soffíu líka þar sem hún hefur stækkað svo mikið og auðvitað Þór líka. Við gengum í gegnum lestarstöðinna sem er tengd við möllið Bruns Gallery. Við fórum í bílinn og keyrðum heim til þeirra. Þegar við komum til þeirra var byrjað að elda sem var mjög gott því ég var orðin mjög svöng eftir allt þetta ferðalag. Það var eldað tortillur með grænmeti, kjúkling, hakki og svo hvítvín. Eftir kvöldmat og þegar Kolbrún Soffía var farin að sofa var setið í stofunni og talað saman og ákveðið hvað við ætluðum að gera næsta dag. Það var farið að vera frameftir þannig það var farið að sofa.

Á laugardeginum tókum við Harpa strætó niður í bæ, því við ætluðum að skoða strikið, kíkja í búðir og skoða svo gömlu dómkirkjuna. Það var gaman að ganga um og skoða fólkið. Við fundum kirkjuna sem er alveg rosalega stór og gömul og mjög falleg. Hún er öðruvísi en
St. Marks kirkjan sem ég skoðaði í Feneyjum. Við tókum engar myndir inn í krikjunni því við vorum ekki vissar hvort það mátti. Eftir að hafa gengið þarna um allt og skoðað kirkjuna vorum við orðnar svo svangar að við ákváðum að finna okkur stað til að setjast inn á og borða. Áður en við fórum inní kirkjuna höfðum við rekist á stað Mackies Pizza sem var með fullt af samlokum, hamborgurum og pizzum. Við fengum okkur alveg rosalega góða kjúklingasamloku. Eftir hádegisverðinn var farið í HM og eytt fullt af pening. Þór og Kolbrún Soffía komu og sóttu okkur og við fórum á markað sem heitir Basaar Vest. Þetta er svona svipað og Kolaportið nema með austurlensku ívafi. Eftir að hafa gengið einn hring þar ákváðum við að fara í Bilka og klára að kaupa kvöldmatinn. Bilka er uppáhaldsbúðin hennar Hörpu og ég skila hana bara mjög vel. Það er mikip af sérvöru og matvöru og ég gæti eydd fullt af tíma þarna inni að skoða og tala ekki um það sem ég gæti keypt. Eftir Bilka var farið heim þar sem Þór vippaði upp rosalegum góðum kjúklingarétti. Eftir að hafa borðað mikið og gengið frá þá færðum við okkur í sófann þar sem áfram var haldið að tala saman, drukkið vín og horft á imbann. Harpa greyið var með svo mikla vöðvabólgu að hún varð eitthvað slöpp. En samt sem áður fórum við seint að sofa.

Sunnudagurinn leyfði okkur að sofa aðeins áfram. Þau hjónin reyndar vöknuðu með litlu stelpunni en lögðu sig aftur með henni. Eftir að borða hádegismat fórum við í Gamle Byen sem er svokallað Árbæjarsafn. Eftir að hafa gengið þar um í nokkra klukkutíma var okkur orðið kalt þannig við ákváðum að fara í mollið og fá okkur heitt kakó og eitthvað smá í gogginn. Kíktum aftur í HM og drifum okkur svo heim. Áður en við fórum heim keyrðum við meðfram smábátahöfninni en þar niðri við sjóinn eru stór og flott ríkmannleg hús. Við heimkomu var ákveðið að panta pizzu og kveldinu var eytt fyrir framan imbann að horfa á Friends.

Þurfti að vakna snemma á mánudagsmorgninum þar sem lestin mín átti að fara um hálf sjö. Harpa vaknaði með mér og sagði bless og Þór keyrði mig á lestarstöðina. Ferðin og flugið heim gekk vel.

Ferðin heppnaðist mjög vel. Gaman að koma þangað í fyrsta skipti og svo sannarlega ekki í síðasta skipti heldur. Vil bara þakka fyrir mig og hlakka til að hitta þau um jólin. Í raun kemur Harpa og litla skvís heim núna á miðvikudaginn.

Slow Dance

02. desember 2008 klukkan 10:25
Fékk þetta ljóð sent til mín í vinnunni. Fannst það mjög fallegt og viðeigandi þessa daganna.

Ég vona að þið njótið þess eins og ég gerði.

SLOW DANCE

Have you ever watched kids on a merry-go-round?
Or listened to the rain slapping on the ground?


Ever followed a butterfly's erratic flight?
Or gazed at the sun into the fading night?


You better slow down. Don't dance so fast.
Time is short. The music won't last.


Do you run through each day on the fly?
When you ask How are you? Do you hear the reply?
When the day is done do you lie in your bed
With the next hundred chores running through your head?


You'd better slow down. Don't dance so fast.
Time is short. The music won't last.


Ever told your child, we'll do it tomorrow?
And in your haste, not see his sorrow?
Ever lost touch, let a good friendship die
Cause you never had time to call and say,'Hi'


You'd better slow down. Don't dance so fast.
Time is short. The music won't last.


When you run so fast to get somewhere
You miss half the fun of getting there.
When you worry and hurry through your day,
It is like an unopened gift.... thrown away.


Life is not a race. Do take it slower
Hear the music before the song is over.


 

Því miður þá kom ekkki fram hvað höfundurinn heitir en það eina sem er vitað er að þetta er táningur sem er með krabbamein.

Stjörnuspá Hrútsins, fimmtudaginn 27. nóvember 2008

27. nóvember 2008 klukkan 09:19
Hrútur: Þú vilt bæta heiminn og ert tilbúin/n til að berjast fyrir hugsjónum þínum. Komandi ár mun að mörgu leyti marka nýtt upphaf hjá þér.

Lýst vel á þetta.

Tölvuvandamál en ekki strákavandamál

24. nóvember 2008 klukkan 18:42
Tölvan mín er orðin nokkurra ára gömul. Undafarnar vikur ef ég hreyfihana vitlaust þá deyr hún. Batteríið er hætt að virka og batterísljósið blikkar stanslaust. Í gær tók hún upp á því að kveikja vara ekki á sér. En ég prófaði að skipta um innstungu og þá var allt í lagi og gat unnið í henni. Í morgun ætlaði ég að vakna frekar snemma og læra en vegna þess að svefntíminn minn í nótt var frekar stuttur ákvað ég að sofa lengur. Um tíu nennti ég loksins frammúr, kveiki á tölvunni og fór í sturtu. Þegar ég var búin og ætlaði að taka minn venjulega morgun nethring tók ég eftir því að hún hafði bara ekki kveikt á sér. Ég prófaði allt og svo virðist sem hleðslutækið er hætt að virka. Það gerðist líka í fyrra um sama leiti. Þá fór ég niður í EJS og gaurinn þar var mjög góður í að hjálpa og komí ljós að hleðslutækið var hætt að virka eins og gerðist í morgun. Ég legg af stað í morgun í þeirri von að fá ágætis þjónustu sem ég er vön að fá þarna hjá þeim. Ég kem þarna lendi ég á einhverri gellu sem er augljóslega ekkki að nenna afgreiða mig. Ég segji henni að ég get ekki kveikt á tölvunni minni og hleðslutækið mitt er hætt að virka. Hún bendir mér strax á að fara á verkstæðið. Það er ekki einu sinni verið að athuga hvort hún geti hjálpað mér eitthvað áður en við þurfum að grípa til þeirra örþrifa ráða að fara á verkstæðið. Ég nefni við hana að þetta hefur gerst áður og þá hefðum við bara prófað annað hleðslutæki. Hún segir þá ég get selt þér annað tæki. Ég segji að ég vilji prófa það áður en ég kaupi nýtt tæki. Loksins felst hún á það að leyfa mér að prófa annað tæki. Tölvan mín kveikir á sér þannig ég kaupi nýtt hleðslutæki og ég þarf ekki að fara með tölvuna á verkstæði. Hef aldrei lent á svona þjónustu. Ég hef sjálf unnið við þjónustu störf og ætla að vona að ég hafi aldrei verið svona hræðileg. Þannig þeir sem versla við EJS vona að þeir leiti aðstoðar hjá öðrum en dökkhærðri gellu með stór og ljót gleraugu.

Helgin hefur heldur ekki verið sú framkvæmdalegasta hjá mér. Var að vinna tvöfalt á föstudaginn þannig það var ekkert gert aukalega þann dag. Laugardagurinn fór í það að vakna snemma. Eftir að hafa sofnað aftur vaknaði ég með alveg hræðilegan hálsríg. Gat ekki snúið höfðinu til vinstri og þar var í raun hálf fast til hægri. Þeir sem hefðu séð mig höfðu hlegið. Mamma ráðlagði mér að setja hitakrem á þar sem mesti verkurinn var og taka íbúfen til að reyna minnka bólguna. Eftir að hafa gert það þá lá eg bara fyrir að reyna lesa en það var soldið erfitt vegna þess að ég get bara horft í eina átt og með verki. En nóg um það. Gat ekki legið endalaust þar sem ég þurfti að vinna um kvöldið. En hey gat aðeins hreyft hausinn lengra til vinstri. Frekar mikið að gera í vinnunni og soldið erfitt að vinna þannig séð með hálfan haus. Verkurinn var minni í gær en samt ekki alveg orðin góð. Það sama er að segja um daginn í gat. Er ekki orðin nógu góð til að horfa til vinstri án þess að fá verki. Ef ég er enn svona slæm á morgun ætla ég að biðja Unni í vinnunni sem er heilari að opna flæðið þarna til að losna við þessa stíflu.

Ferðasagan frá Danmörku verður að koma seinna.

Hrabba out!

Ferðasaga á leiðinni

10. nóvember 2008 klukkan 11:30
Ég er á lífi, bara búin að vera í litlu blogg stuði þessa daganna. En það kemur ferðasaga á næstu dögum.

Frábær tilboð innanlands

30. október 2008 klukkan 15:06


Tilboð á gistingu í Reykjavík.

Fosshótel Baron og Fosshótel Lind eru með tilboð á gistingu í nóvember.
Gisting í tveggja manna herbergi með baði á 7.000 kr per nótt, morgunverður er innifalinn.
Gisting í eins manns herbergi með baði á 6.000 kr per nótt, morgunverður er innifalinn.
Aukarúm í herbergi 3500 krónur.
1 barn yngra en 12 ára frítt með foreldrum sínum.


Vil einnig minna á hótelin okkar í Reykholti í Borgarfirði og Hengill
á Nesjavöllum. Falleg hótel i náttúru Íslands. Góð tilboð í boði.


Bókanir berist til aðalskrifstofu í síma 564 4002 eða í gegnum tölvupóst bookings@fosshotel.is
Upplýsingar um hótelin okkar er að finna á heimasíðunni www.fosshotel.is

Verið velkomin

Skrifa og skila, skrifa og skila

27. október 2008 klukkan 10:19
Enn ein helgin búin og klukkan tifar hraðar og hraðar. Skrifin ganga hægt. Þarf að skila í þessari viku til kennara og gengur hægt. Klukkan tifar áfram og áfram og hraðar og hraðar. Það koma upp ýmsar hindrnir hjá mér. Vinna sem hefur í raun farið aðeins minnkandi en þá tekur hin vinnan við. Þreyta, svefn, vinir og fjölskylda. Sjónvarp og ýmsir þættir sem maður hefur fest í. Þarf aga, mikinn sjálfsaga til að setjast niður og skila og skrifa og skila og skrifa. Þarf að hlekkja mig við efnið þarf að finna mig í efninu svo ég geti skrifað og skilað og skrifað og skilað. Vil ekki fresta einu sinni enn, langar að klára en er gott verk gert á stuttum tíma? Hugsa að fresta og klára með eldri systur. Gaman að fá gráðu á sama degi. En langar að vera fyrst af systrum að fá gráðu. Sýna að ég er ákveðnari, frekari, klárari og betri heldur en þær. Þarf að skrifa og skila, skrifa og skila.

Feluleikur gjaldeyrisins

24. október 2008 klukkan 11:13
Ég ákvað í vikunni að drífa mig í því að kaupa gjaldeyri. Er búin að fresta því nógu lengi. Ég fór í Glitni hérna í Kirkjusandi til að kaupa nokkrar danskar krónur. En nei það var bara enginn gjaldeyrir til hjá þeim. Ein konan sem var að vinna þarna bendir mér að hafa samband við Landsbankann. Ég hef samband við Landsbankann upp í Mjódd þar sem ég var á heimleið en þeir áttu heldur ekki danskar krónur. Víst ég var á leiðinni heim ákvað ég að koma við í Glitni í Mjódd og þar var einn óvinalegasti bankastarfsmaður að afgreiða mig. Greinilegt var að hann var samkynhneigður, ekkert af því, hann var greinilega nýlegur í þessu starfi og leit svo niður á það sem hann var að gera að það kom fram í þjónustulundinum hjá honum. En allavega hann átti ekki danskar krónur og var voða spenntur yfir því að reyna selja mér færeyskar krónur því ég gæti skipt þeim þarna úti. En ég sagði honum að ég myndi ekki ná í banka því bankar eru bara opnir á laugardögum á Íslandi. Hann skildi það og ég bað hann að hringja upp í Glitni Garðabæ og athuga hvort þau áttu danskar krónur. Bankinn MINN átti þennan pening þannig ég fór í gærmorgun og keypti mér nokkrar krónur. Þessi maður fór bara eitthvað svo rosalega í mig.

Ég keypti mér líka lestarferð í gær til Århús með hjálp Möggu the Magnificent þannig núna bíð ég bara eftir að fara út og hitta hana Hörpu mína.

Talandi um að hitta vinkonur þá hitti ég hana Kristínu mína í gær. Við fórum saman eftir vinnu að borða ég Vegamótum. Sátum þar í rúma tvo tíma og spjölluðum og spjölluðum. Kíktum svo aðeins á kvennakvöld hjá Blómavali sem var nú ekkert spennandi. Síðan keyrði ég hana Kristínu heim þar sem hún var að fara í danstíma með honum Jón sínum. Alltaf gaman að hitta hana og spjalla þótt við gerum það ekki nógu oft.

Þessi helgi á eftir að vera vinnuhelgi út í eitt. Vonandi nenni ég að kíkja í ræktina og svo bara BA-st.

Hrabba out!

All hallows eve

20. október 2008 klukkan 19:09
Eftir rúmar tvær vikur flýg ég út til Danmerkur að heimsækja hana Hörpu mína. Ég flýg út 31. október sem er betur þekkt sem Hrekkjavaka.

Halloween eða hrekkjavaka eins og hún er kölluð á íslensku er fyrirbæri sem er ekki mikið þekkt hérna á landi. Seinasti áratuginn hafa samt verið soldið ad bandarískum áhrifum hér á landi, þá aðallega í verslunum. En við höfum sem betur fer ekki alveg tekið upp þennan hrekkjavökusið en Öskudagurinn okkar er svona nokkurn veginn sömu hlutir (kannski fyrir utan allt nammið). Sem verðandi mannfræðingur finnst mér gaman að velta fyrir mér gömlum hefðum og siðum sem hafa breyst í gegnum tíðina. Við höldum enn upp á ýmsa hluti en upprunalega merkingin virðist hafa týnst eða breyst í gegnum aldirnar. Þetta á sérstaklega við siði og hefðir hér á Vesturlöndum.

Halloween eins og þetta heitir á ensku er tekið af gamla heitinu All Hallows Eve eða hin allra heilaga nótt. Þá er sagt að skilin milli heima þeirra lifandi og dauðu sem minnst. Í raun er þetta gömul keltnesk hátíð sem átti uppruna sinn til Írlands og Skotlands en hefur dreifst um Bretlandseyjar, Bandaríkin og önnur lönd sem hafa afkomendur frá þessum svæðum. Þetta var hátíð sem var haldin til að fagna að uppskerunni átti að vera lokið. Stundum er talað um þessa hátíð sem merki um nýtt ár hjá Keltum.

Eins og ég nefndi áðan var talið á þessum degi lyftist hulan á milli heima og þeir látnu mynduðu hættu gagnvart þeim lifandi. Mikið var um varðelda á þessum hátíðum og fólk setti upp grímur til að fela sig frá og halda illum öndum í burtur. Hérna kemur uppruni þess siðar að þurfa að klæða sig upp í búning og þykjast vera einhver annar en maður er í raun.

Hrekkjavaka er til í margskonar myndum í mörgum löndum. Ef þið viljið vita meira mæli ég með að þið lesið ykkur til um það sjálf.

xoxo
Hrabba out!

Full af kvefi og með hausverk bíð bara eftir beinverkjunum

16. október 2008 klukkan 16:10
Ég tók þá ákvörðun um daginn að hætta að fylgjast með öllum fréttum um þessi fjárhagsvandamál þjóðarinnar. Ég auðvitað fylgdist með fyrst um sinn en síðan varð ég bara þunglyndari og stressaðri með að hlusta á þetta allan daginn. Útvarpið var í gangi allan daginn hérna í vinnunni og hækkað inn á milli sem fréttirnar voru. Síðan var maður að skoða allar vefréttir íslenskar og erlendar. Horfði svo á sjónvarpsfréttir þegar maður kom heim. Eftir að hafa hætt að fylgjast með þessu öllu þá líður mér mun betur. Auðvitað hefur þetta allt saman áhrif á mann. Maður er að heyra af fólki sem er að missa peningana sína og þeir sem eru með lán í erlendum gjaldmiðli eru að lenda illa í því þessa daganna. Ég á ekki neitt og bílalánið mitt er í íslenskum krónum þannig það kannski á eftir að hækka aðeins. En er bara ok stödd í bili. Það eina sem ég hef svona "áhyggjur" af er Danmerkur ferðin mín sem á kannski eftir að kosta mig soldið mikið miðað við hvernig gengið er í dag. Þetta er soldið fyndið hvernig þetta hefur snúist við í dag því maður talaði alltaf um hvað allt væri ódýrt í Danmörku en núna er í raun ódýrt að vera á Íslandi. Kannski ekki fyrir Íslendinginn sjálfan en alla aðra.

Það er farið að aukast aðeins hérna í vinnunni enda eru ferðaskrifstofur á fullu að auglýsa ódýrar verslunarferðir til Íslands svona rétt fyrir jólin. Síðan eru líka sumarbókanir farnar að detta inn.

Edda, Auður og Anna Sigga eru komnar til Namibíu eftir að hafa verið að keyra um alla Suður Afríku. Væri alveg til í að vera með þeim eða hitta þær og sína þeim Namibíu. Talandi um Namibíu þá eru tvenn vinahjón mömmu og pabba farin til Nambíu að heimsækja pabba og Ludene. Hittum þau einmitt á sunnudaginn þegar við vorum að fara með smá pakka til þeirra og þau voru rosa spennt. Hefði líka verið gaman að vera úti og hitta þau. Svona leyfa þeim að sjá hvernig er heima. Ég veit ekki hvað það er enn það er eitthvað sem er að tosa mig þangað út núna þessa daganna. Hver veit nema eftir ritgerðarskil að maður hoppi bara út. Grípa hana Birnu með enda langar hana alltaf út með mér og frábært að hafa ferðafélaga með sér. Talandi um ritgerð þá er komin skiladagur á hana og það er 15. janúar sem þýðir að ég þarf að fara virkilega að spýta í lófanna. Frá og með mánudeginum þá vinn ég bara hálfan daginn á mánudögum og miðvikudögum þannig vonandi eigi það eftir að koma einhverju í gang svo sjáum við bara til þegar nær dregur hvort ég þurfi að minnka meira við mig eða ekki.

Þeir sem vita þá á ég að mæta í vinnu kl 9 á morgnanna en í þessari viku þá hef ég ekki mætt einn dag á réttum tíma. Veit ekki hvað þetta er en það er svo erfitt að vakna á morgnanna. Klukkan mín hringir um sjöleitið og ég er að snúsa bara endalaust. Er kannski að drattast fram úr um hálf níu og auðvitað er hálftími ekki nóg til að fara í sturtu og gera mig sæta. Ætla að prufa að láta klukkuna hringja kannski hálfsjö svo að ég mæti kannski einn dag á réttum tíma í vinnuna. Sit einmitt hérna núna með dúndrandi hausverk og rosalega stíbbluð. Ekki gaman. Vona að ég er ekki að veik þar sem ég ætla að eiga rosalega skemmtilega helgi.

Jæja ætla að enda þetta með smá myndum frá Namibíu.

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...