Föstudagur til mæðu

10. október 2008 klukkan 11:00
Ég hef ekki nennt að skrifa neitt seinustu daga enda hefur voða lítið verið að gerast. Það eina sem samfélagið fjallar um þessa daganna eru efnahagsmálin. Ég hef reynt að fylgjast með og hlusta á fréttir en þetta gerir mann bara þunglynda að vita hvernig ástandið er. Ég er bara fegin að mínir peningar eru öruggir í bili.

Seinustu helgi þá var hún Ólöf með kokteil partý. Við Birna fórum og drukkum nokkra Mojito, hlustuðum á tónlist og svo var farið í bæinn. En miðað við hvað við drukkum ágætlega mikið þá fundum við ekkert svo mikið á okkur. Við kíktum samt á Apótekið með henni Barböru, fórum inn á Hressó, gengum hring á Celtic, stöðum í röð á Kaffibarnum og svo fórum við heim. Var fegin að komast heim enda var ég orðin eitthvað rosalega þreytt.

Sunnudagurinn fór samt að mestu leyti í þynnku og smá verslunarleiðangur með Tinnu.

Vinnan er bara sú sama, ritgerðin er bara sú sama.

Hef reyndar verið ágætlega dugleg að hitta fólk sem ég hef ekki hitt lengi. Hef örugglega nefnt áður FÞ hittingin og síðan hitti ég Rebekku frænku í hádegismat einn daginn og núna á miðvikudaginn þá tókum við Ragga eitt lunch saman.

Jæja ætla að fara gera eitthvað að viti.

xoxo

Svartur mánudagur, grár þriðjudagur og svo óvissa

01. október 2008 klukkan 14:07
Mánudagur var svo sannarlega svartar mánudagur. Aldrei hafði hvarlað að mér að Glitnir væri í svona slæmum málum. Mér reyndar finnst ágætt að ríkið náði að bjarga þeim svona rétt fyrir horn og að ríkið sé komið aftur inn á bankasvæðið. Að mínu mati þarf alltaf að vera ríkisrekinn banki bara til að koma á móts við hina. Það gengur ekki að hafa alla banka í landinu einkarekna. Það sem mér er mest illa við í sambandi við þetta málefni er að maður vissi ekki neitt. Þetta kom manni algjörlega að óvörum. Ég er með öll mín viðskipti í Glitni og hefði allt mitt fé horfið ef ríkið hefði ekki gripið inn í. Ég hefði átt engan pening en staðið upp með stórt lán. Úff.

Útlitið er ekki gott verð ég nú bara að segja.

Sú elsta er orðin enn eldri

24. september 2008 klukkan 11:07
Þessi fallega mey á afmæli í dag. Hún orðin eldri en hún var í gær. Vegna viðkvæms málefni mun aldur hennar ekki vera birtur .


Til hamingju með daginn Tinna!!

Barnæskan og sveitanostalgia

22. september 2008 klukkan 14:51
Við erum hér tvær frænkur sem vinna saman á skrifstofunni. Erum skyldar í gegnum afa okkar sem koma frá Vestfjörðum. Við höfum ekki haft mikil samskipti í gegnum árin hist svona öðru hvoru í einhverjum boðum eða svona á gangi. En þegar við vorum allar yngri þá vorum við oft á sama tíma fyrir vestan og áttum góðar stundir þar. Eitt sumarið þá settum við saman upp eitt bú og var mikið leikið í því og farið niður að rifi til að finna svala hluti til að hafa í búinu. Í minningunni þá var alltaf gaman fyrir vestan. Hvorugar okkar hafa farið mikið vestur á seinustu árum en manni langar alltaf þótt maður láti ekkert verða af því. Við Lára hittumst núna inn í eldhúsi í hádegismatnum okkar og fórum að tala um Rauðasand og svona og hvað það var gaman. Með það í huga fór ég að leita að myndum af Lambavatni en fann bara fullt af myndum af Rauðasandi í staðinn.



Morgunleikfimi og sjálfshjálparmeil

19. september 2008 klukkan 10:14
Ávallt þegar maður kom til vinnu í byrjun sumars þá gat maður treyst á það að finna eitthvað skemmtilegt sjálfshjálpar/sjálfstyrkingar meil frá framkvæmdarstjóranum. Hann var að ganga í gegnum eitthvað svona sjálfshjálparbókatímabil og vildi endilega deila þessari visku sinni með okkur hinum. En þegar fór að líða á sumarið þá minkkuðu þessi meil og núna eru þau alveg hætt að koma til manns. Það er svo semt ágætt. Ég hef ekkert á móti því að fólk er að lesa svona sjálfshjálparbækur og er að reyna vinna í sjálfu sér en finnst samt óþarfi að þau reyna að koma þessu yfir á okkur hin. Allt í lagi að nefna þetta og svona en að tala um ekki neitt annað heldur en þetta finnst mér eiginlega einum of mikið. Ég er ekki ein af þeim sem les sjálfshjálparbækur en væri samt alveg til í að lesa The Secret bara til að sjá hvað allt þetta umfang í kringum eina bók er. Ef hún myndi gera mér eitthvað gott þá er það frábært.

Annað sem hefur verið rætt mjög mikið í vinnunni er að starta svona morgunleikfimi. Þessi vinnustaður er óvenju healthy eitthvað. Eða meira um það að fólk er að reyna vera healthy. Það eru allir að passa sig á því sem þau borða og svo eru aðrir sem eru alltaf í einhverju átaki og tala ekki um neitt annað en hvað þau borðuðu þennan dag eða hvað þau þurftu að gera í ræktinni í gær og svona. Ég hef reyndar ekki verið ein af þessum heldur borðað það sem ég vil borða og ekki verið að hreyfa mig. En núna er ég komin í þetta dans-aðhaldsnámskeið og er svona að byrja að passa það sem ég er að borða. En hef samt ekki orðið vör við það að ég geri ekkert annað en að tala um það sem var gert í tímanum. Mér finnst leiðinlegt að hlusta á fólk sem talar ekki um neitt annað og vona svo sannarlega að ég tala um eitthvað annað. En nóg um það. Í allt sumar hefur ákveðinn hópur verið að tala um að hafa smá svona morgunleikfimi einu sinni í viku. Bara til að skemmta og hrista hópinn aðeins upp. Frábært átak hjá þeim. Þetta byrjaði í sumar og þá var þetta bara eitthvað eitt skipti eða tvö en datt svo upp fyrir. En þetta hófst aftur seinasta föstudag en í staðinn fyrir að hafa svona leikfimi þá er þetta meira svona danstímar. Seinasta föstudag tók einmitt hún Aya hópinn í kennslu á japönskum dansi. Það varmjög fyndið að horfa á þetta. Í dag var hún að taka fólkið í Reggae dans. Ég er kannski anti félagsleg en hef ekki tekið þátt í þessum dönsum. Er frekar að vakta símann og vinna eða eins og núna að blogga. Ástæðan er sú að á fimmtudagskveldum er tími í mínu námskeiði og á föstudagsmorgnum er ég bara rosa þreytt eiginlega of þreytt til að hoppa um og dansa. Núna heyri ég bara tramp, hlátur og tónlist. Mjög gaman hjá þeim.

Þrír aðilar í vinnunni í sumar eða reyndar í vor voru svo dugleg að fara upp á Hvannadalshnjúk. Út frá því var stofnaður Gönguklúbbur sem hefur verið að fara upp á fjöll í sumar. Ég hef ekki farið einu sinni með þeim. En ég keypti mér samt gönguskó í sumar og gekk upp á Esjuna. Fór samt ekki á toppinn en gekk samt aðeins upp. Þarf að gera það aftur og athuga hvort ég kemst lengra heldur en ég komst seinast. Langar líka að fara upp í Heiðmörk og ganga þar í haustlitunum. Sé hvernig veðrið er á sunnudaginn hvort maður fer eða ekki.

Jæja ætla að fara yfir þennan stóra reikningsbunka hjá mér.

Leti, Ræktin, Ritgerð og Getz.

18. september 2008 klukkan 10:12
Úff það er fimmtudagsmorgun og ég sit hérna í vinnunni í íþróttafötum, rosalega mygluð með sjóinn við gluggann. Það er allt grátt úti og haustlegt og sjórinn er ekki stilltur. Það er frekar rólegt hérna í vinnunni þessa daganna þannig ég væri mun meira til í að vera heima upp í rúmi að kúra eða bara já sofa.

Dansaðhalds námskeiðið gengur bara vel. Úthaldið mitt og þol er farið að vera miklu sterkara heldur en það var. Er ekki alveg dauð eftir tímanna eins og ég hélt að ég myndi vera. Núna er það mataræðið sem ég þarf að fara taka í gegn. Það er hægara sagt en gert.

Annað sem ég þarf að taka mig á eru ritgerðarskrif. Þetta gengur ekki. Þarf virkilega að fara sparka í rassinn minn. Þarf að taka á þessu núna þar sem líkamsræktin eru komin á skrið.

Hef reyndar voða lítið að segja eitthvað. Nema að Micran hefur verið lögð inn. Er komin á nýjan kagga. Fór upp í BogL um daginn og nældi mér í eitt svona gullegg. Þeir tóku gamla kaggann upp í og núna er ég komin á þennan glæsilega Hyundai Getz


Það er rosa gott að keyra hann. Hann er aðeins stærri en Micran og rúmbetri að innan. Fínt að vera komin á bíl sem ég þarf ekki að hafa áhyggjur af hvort hann sé að bila í dag og leiðinni heim eða hvort hann bara startar næst þegar ég ætla að keyra eitthvað. Keypti líka ný vetrardekk á þennan þannig ég verð ekki á sumardekkjum í vetur eins og seinasta vetur. Það er eitthvað sem ég ætla ekki að gera aftur.

Seinustu frí helgi þá hitti ég Birnu Maríu Mannógellu og við fórum út að borða. Hornið var fyrir valinu. Það var langt síðan að við höfðum hist. Við ákvaðum að reyna að hafa mannóhitting einhvern tímann í október kannski, þá við stelpurnar sem byrjuðum saman í mannfræðinni. Kannski hittast, elda saman og fá sér smá í glas. Það verður sent út meil á næstu dögum með nokkrum dagsetningum þannig endilega stelpur farið að huga að þessu. Edda, Auður og Anna Sigga Mannógellur eru í Afríkunni einhversstaðar að keyra og skoða sig um. Væri alveg til í að vera með þeim. Væri í raun bara alveg til í að fara heim í smá tíma. Hitta gamla vini og kunningja, auðvitað fjölskyldu, ná mér smá í lit og drekka Hunters Gold. Hver veit nema einhvern tímann á næsta ári að maður fer út.

Hvað næsta ár og næstu mánuðir bera í skauti sér er alveg óráðið. Er enn að huga að hvað mig langar að gera. Næsta skref er að klára þessa ritgerð og lifa af jólin.

Jæja ætla að fara vinna eða þykjast vinna...er orðin voða góð í því.
Ullandi

Hún á afmæli í dag hún á afmæli í dag hún á afmæli hún Bryndís hún á afmæli í dag

02. september 2008 klukkan 12:18
Jæja það var fyrir 19 árum síðan þegar ég komst að því að ég væri ekki lengur yngsti fjölskyldumeðlimurinn. Það var orðið formlegt foreldrar mínir höfðu ættleidd litið lukkutröll frá Grænlandi. Troll Doll

Hún hefur verið erfið á tímum og stundum hefur mig langað að skila henni aftur til Grænlands. En því meira sem hún eldist þá hefur hún reynst hið vænsta skinn.

En nóg um hana og snúum aftur til mín.

Í gær var fyrsti dagurinn í nýja átaksnámskeiðinu. Það reyndar var ekki tími heldur fyrirlestur. Svona hvatningarfyrirlestur sem var í raun allt í lagi. Í kveld er svo fyrsti sprikl tíminn og mælin Öskrandi Er ekki spennt fyrir henni. En vonandi gengur það vel....það er að segja ef ég verð ekki of dauð eftir þennan tíma.

Ætla að halda áfram að vinna.
Hrabba out!


I cannot believe its September already

01. september 2008 klukkan 15:06
Seinasta vika var nokkuð merkileg.

Hún Bryndís keypti sér sinn fyrsta bíl. Mjög sæta Yaris 2004 árgerð.

Ég keypti mér árangursnámskeið hjá Hreyfingu sem hefst með fyrirlestri í kveld. Fyrsti tíminn hefst svo á morgun. Er mjög spennt fyrir að byrja á þessu og loksins að missa eitthvað af þessum aukakílóum sem ég verið að bæta á mig seinustu ár.

Helgin var frekar óspennandi var bara að vinna á Madonnu og þess á milli lá ég og litla Buffy og kúrðum okkar saman undir sæng.

Á morgun eða í nótt þá leggja Afríkumærnar af stað í ferðalagið sitt. Öfunda þær ekkert smá með að vera fara og væri alveg til í að fara með þeim. Á morgun á Bryndís líka afmæli. Hún er verður 19 ára. Vá hvað þetta líður hratt.

Ég er annars bara að vinna og berjast við að skrifa þess á milli. Sú barátta gengur ekkert rosalega vel. En vonandi fer þetta að koma hjá mér.

Annað er að One Tree Hill og Gossip Girl verða frumsýnd í BNA í kveld sem þýðir að vonandi á morgun verður þetta komið á netið og ég get horft á þetta eftir æfingu. Hlakka mjög til. Er það kannski sorglegt þegar dagurinn er farinn að snúa um sjónvarpsþætti en ekki vini og vandamenn??


Hrabba out.

Haustið alveg að koma

18. ágúst 2008 klukkan 10:27
Harpan mín er flogin í burtu. Flugið hennar fór snemma í morgun. Ég á eftir að sakna hennar mikið en auðvitað er maður að heimsækja hana. Hún og Þór ætla líka að vera dugleg að blogga og svo vonandi á maður eftir að eiga einhver skemmtileg netspjöll.

Það er augljóst að haustið sé að fara koma. Umferðin á morgnanna í vinnunna og umferðin heim úr vinnunni hefur aukist alveg rosalega. Það er farið að vera dimmara á kveldin og þyngra yfir dögunum. Ljósin á ljósastaurunum eru kveikt lengur en vanalega og í öllum blöðum er ekkert nema auglýsingar um skólavörur. Sumarstarfsfólkið í vinnunum er að vinna sína seinustu daga og eftir næstu viku held ég að allir verða farnir.

Systur mínar eru að vinna sínu seinustu daga í sumarvinnunum og svo hefst skólinn hjá þeim á næstu vikum. Ég sit eftir í minni vinnu með mína ritgerð.

Af minni 24 ára ævi þá hef ég verið í skóla í 18 ár og finnst leiðinlegt að þeirri göngu sé hætt í bili. Auðvitað fer maður í meira nám og svona en hvort það er á næsta ári eða þar næsta er ekki komið á hreint. Auðvitað er skólagangan mín ekki búin alveg í vetur þar sem ég þarf að gera ritgerð og plana ég að gera eitthvað af þeirri vinnu á bókasafninu eða upp í skóla um helgar og á kveldin eftir að vinnu lýkur.

Skólinn kemur alltaf upp einhverri ákveðinni rútínu hjá manni og í raun vinnan líka bara aðeins öðruvísi. Núna þarf maður bara að fara lifa aðeins öðruvísi.

Breytingar framundan

11. ágúst 2008 klukkan 14:44
Í dag er skrítinn dagur. Glaðvaknaði kl 5 í morgun og var of löt til að fara fram úr og gera eitthvað af viti, í staðinn valdi ég þann kost að liggja í rúminu og velta mér og snúa og velta mér og snúa þangað til að klukkan hringdi en þá náði ég að sofna í smá stund með þeim afleiðingum að ég mætti ekki á réttum tíma í vinnuna. Í framhaldi af því þá er þetta búið að vera mjög furðulegur dagur, eitthvað svona eirðarleysi í mér, er í svona nart stuði. Er í raun bara að bíða eftir að vinnudagurinn sé lokinn þannig ég get komið mér heim.

Helgin var samt með rólegra móti. Föstudagur og laugardagur voru ágætir og svo sunnudagurinn ekki alveg í eins rólegu móti. Tinna dró mig ásamt tveimur vinum sínum upp í Esju. Þeir sem þekkja mig vita að ég hef aldrei farið upp í Esju og þessa daganna er ég svo sannarlega í mínu verst formi. Þetta tók á og var erfitt og ég náði því miður ekki upp á toppinn. Um kveldið þá var skruppið heim til Hörpu og Þórs þar sem þau voru að halda upp á afmæli litlu skvísunnar. Hún verður eins árs núna á næstu dögum.

Það eru miklar breytingar framundan í kringum mig. Ein góð vinkona er að fara eignast sitt fyrsta barn og það á eftir að breyta okkar samskiptum. Ekki til hins verra neitt en um leið og það er komið barn og vinkona svo ekki með barn það breytist alltaf eitthvað. Harpa og Þór eru að flytja til Danmerkur núna í vikunni, Harpa reyndar flýgur ekki út fyrr en á mánudaginn og ég á eftir að sakna hennar mjög mikið. Nokkrar mannógellur eru að fara til Afríku og verða þar í nokkra mánuði að skemmta sér og ferðast einn mannógaur er að flytjast norður til að kenna í skóla og læra meira. Systur mínar tvær eru báðar að fara í skóla en ekki ég. Ég er bara á vinnumarkaðnum og svo að skrifa ritgerð með vinnu. Allt eitthvað að breytast en mér finnst ég standa svolítið í stað. Skrítin tilfinning. En hver veit nema það séu einhverjar breytingar framundan hjá mér, einhverjar sem ég veit kannski ekki um. Það verður gaman að vita hvað örlaganornirnar hafa spunnið fyrir mig.

En jæja ætla að halda áfram að vinna aðeins þannig ég kemst fyrr heim.

Hrabba out!

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...