Mannfræði þróunar

11. desember 2007 klukkan 15:04
Seinustu dagar hafa ekki verið miklir lærdómsdagar hjá mér. Var að vinna á laugardaginn en vaknaði samt snemma til að lesa eina grein. En var að vinna alveg til klukkan ellefu um kveldið þannig ég hafði enga orku til að lesa. Síðan á sunnudaginn var á á bakvakt en var með eitthvað svo miklar áhyggjur um hvort þau myndu hringja eða ekki þannig ég var ekki að koma mér í lærdómsstuðið. Mánudagurinn fór í svefn og svo vinnu. En þetta hefur bara verið skemmtileg helgi. Mikið að gera þannig þetta leið hratt.

Á föstudaginn vorum við Tinna bara heima og læra og svo ákváðum við að horfa á sjónvarpið um kveldið og vorum búnar að koma okkur vel fyrir en verður þá ekki rafmagnslaust. Ekki gaman. Allt Seljahverfið varð rafmagnslaust og það var svo svart að við sáum ekki handa okkar skil. En kveiktum bara á kertum og höfðum það kósý og horfðum bara á mynd í tölvunni.

Svefninn hefur haft yfirhöndina undafarna daga en svefnmynstrið mitt er komið í algera klessu. Sofna seint vakna seint bara eins og gengur og gerist í prófum.

Vaknaði snemma í morgun og þurfti að fara á skorarfund en í raun hélt áfram að sofa þar....bara með opin augun.

Ég ætla að taka daginn í dag og morgundaginn í mannfræði þróunar. Ekki auðveldasta lesning í heimi þannig að .... ætlaði bara að heilsa og hafa eitthvað annað en þessa Mozart færslu.

Hrabba out.

Mozart á miðnætti

05. desember 2007 klukkan 20:30
Klukkan hálf eitt í nótt voru tvö hundruð ár síðan að Mozart dó. Í tilefni þessa atviks þá var Óperukórinn í Reykjavík ásamt lítilli sinfóníuhljómsveit með miðnætur tónleika í Langholtskirkju í gær. Það var flutt verkið Requiem en það er seinasta verkið sem hann samdi og í raun verkið sem hann náði ekki að klára. Við Tinna fórum á þessa tónleika, þeir stóðu nú frekar stutt eða í rúmlegar 50 mínútur og frá fyrstu mínútu þá var ég með gæsahúð. Þetta var svo flott. Svona mikið og dramatískt verk ekki hefðbundin ópera. Væri alveg til í að sjá þetta verk með stærri kór og miklu stærri hljómsveit. Þótt að þetta voru ekki jólatónleikar þá voru þetta jólatónleikarnir fyrir okkur Tinnu í ár. Þetta var alveg æðislegt.

Prófalesturinn gengur frekar hægt hjá mér en þetta er allt að koma. Er að vinna um helgina þannig það verður lítið lært þá en annars er ég bara heima þessa daganna að læra eða reyna það. Vona að öllum gangi vel.

Hrabba out!

Sólarhringur í næstu skil

28. nóvember 2007 klukkan 10:36
Ein ritgerð búin, ein kynning og eitt stutt verkefni. Núna á ég bara eftir eina ritgerð sem ég þarf að skila á morgun. Er ekki byrjuð og veit ekki almennilega hvernig ég á að fara gera þessa ritgerð. En mér á eftir að takast þetta einhvern veginn.

Á morgun er seinasti skóladagurinn hjá mér á þessari önn sem hefur verið ein sú skemmtilegasta í háskólanum hjá mér. Gaman verður að sjá hvernig næsta önn verður.

Eftir morgundaginn er planið að taka smá púst, taka til og þrífa herbergið mitt, vinna á laugardaginn og svo byrja að læra undir prófin. Hlakka soldið til að fara læra undir þeim þar sem þetta eru skemmtileg efni sem ég er að fara taka próf í.

Annars er búið að vera mjög rólegt hjá mér. Gaman væri ef einhver annar en Ólöf myndi kvitta þótt það er gaman að lesa röflið í henni Hlæjandi

Jólin koma....

25. nóvember 2007 klukkan 16:31
Jólin koma já jólin koma and all I want for Christmas is you....

Var að vinna í gær og ein stelpan sem ég er að vinna með var í svo miklu jólaskapi að hún setti jólatónlist á. Ég var mjög mótfallin því enda er ekki komin desember. Jólalögum er svo nauðgað í búðum og í útvarpinu að óþarfi er að spila þau áður en desember byrjar. Það er líka bara rúm viku í aðventu.

Þegar ég horfi út um glugga hér í hverfinu þá eru sumir búnir að setja upp seríur og aðventuljós. Það er reyndar í lagi því það er orðið svo dimmt úti.

Ég sjálf er ekki búin að skreyta eða ná í jóladót en er að hugsa að gera það næstu helgi enda er þá þessi ritgerða- og verkefna törn búin hjá mér. Gott að gera eitthvað smá svona áður en prófalesturinn hefst.

Ritgerðarsmíðin ganga ágætlega nema í gærkveldi eftir vinnu ætlaði ég að halda áfram en það varð ekkert úr því. Var svo rosalega slöpp þegar ég kom heim enda er ég að fyllast af kvefi. I blame Ólöf Ullandi. Sat bara upp í sófa ein heima með kettinum vafin inn í teppi að horfa á American Music Awards áður en ég lagðist út af og sofnaði. En smíðarnar gengu mjög vel á föstudaginn og svo núna. Hefur reyndar tekið mig hálfan daginn að byrja en gengur bara ágætlega.

Samt sit ég og blogga Svalur.

Jæja ætla að halda áfram. Langaði bara að kasta kveðju á alla.

RitgerðarHrabba out!

Ritgerðarsmíði

21. nóvember 2007 klukkan 14:14
Er að reyna að skrifa ritgerð. Gengur illa. Netið er lélegt og það pirrar mig. Það er heljarinnar veisla í maganum á mér því það koma asnaleg hljóð þaðan sem trufla mig. Ragga er að syngja Metallica og hún er fölsk.

Mér er kalt með hausverk en verð að halda áfram.

Enn ein svefnlausa helgin

11. nóvember 2007 klukkan 20:31
Mig langar að geta sofið eina helgarnótt án þess að vera vakin upp af mannamáli, bílaumferð eða partý stangli. Þessi tvö ár sem ég hef búið hér í Stífluselinu þá hefur aldrei verið neitt vesen eða einhver áberandi hávaði. Einstaka nágranni er með partý stökum sinnum og maður er yfirleitt var við þau. Eitt partýið þá lentu einhver hjón upp á kant og á endanum flúði hún út í bíl og kallinn var hálfa nóttina að reyna brjóta bílsgluggann eða þangað til lögreglan kom. Í næsta stigagangi til vinstri var hópur af Pólverjum (farandsverkamenn) sem voru mjög fínir en fyndið að heyra pólsku um hverfið þegar þeir voru með samkomur. Síðan í þessum stigangi býr fólk frá einhverju Asíu landinu og þau voru um daginn með Singstar partý. Það var mjög skemmtilegt að heyra það. Síðan er fluttur strákur inn í einn stiganginn og enginn læti í honum neitt en það hefur aukist umferðin um götuna til helmings. Hann býr víst einn og mikið um að strákar á misháværum bílum eru að koma til hans og oftast á nóttunni og gerir það að verkum að mikil bílaumferð er fyrir utan gluggann hjá mér og svona mas. Eins og í nótt það var bíll í gangi í eflaust meira en klukkutíma og þetta er ekki beint skemmtilegasta hljóðið til að reyna sofa við. Það er skrautlegt að búa í Breiðholtinu.

Helgin er búin að vera mjög róleg annars. Er bara búin að vera vinna og reyna að læra eitthvað en gengur frekar hægt. Það er búið að vera svo mikið að gera í vinnunni á daginn að ég er bara dauðuppgefin þegar ég kem heim.

En ætla að ganga frá stórum þvottahaug og fara síðan að kíkja í bók!!!

Brúðkaup framundan

05. nóvember 2007 klukkan 21:20
Já þið hafið heyrt rétt. Ég er að fara gifta mig. Brúðguminn er brúnn fullur af bókum og með honum fylgir ágætur stóll. Hann kallar sig skrifborð og er á besta stað í herberginu mínu. Áætlunartími brúðkaupsins er út nóvember og eitthvað fram í desember.

Gjafir eru afþakkaðar en truflun hins vegar ekki. Hlæjandi

Snæfinnur snjókall

30. október 2007 klukkan 12:21
Ef það er ekki bara kominn snjór. Enn er ég ekki búin að setja vetrardekkin undir bílinn en kannski af því að ég á engin. Ég þurfti að láta þau fara sem ég átti vegna að það var ekki hægt að kalla þau nagladekk lengur. Ætla að kaupa mér ný og setja svona heilsársdekk undir bílinn hjá mér. Þá þarf maður ekki að vera skipta um þetta helvíti og eyða miklum pening í það.

Ég er nú ekki mikil snjó manneskja en verð samt að viðurkenna að það er smá kósý að hafa hann. Dagurinn er orðinn soldið dimmur og þá hef ég afsökun að kveikja á seríum og vera með kertaljós klukkan 10 að morgni.

Ég á að vera að gera heimapróf sem rennur út á morgun um hádegi en það gengur eitthvað voðalega illa að setjast og einbeita sér. Spurningarnar í þessu prófi er svo rosalega opnar og erfitt að niðurnjörva þær en það einkennist af því að þetta er hann Sveinn sem er að spyrja. Ég er bara komin á það að mér leiðist heimapróf. Frekar vil ég bara læra þetta og taka almennilegt próf í staðinn fyrir að liggja yfir þessu í tvo þrjá daga. Síðan strax eftir prófaskil á morgun hefjas ritgerðargerðir og verkefni. Fundir og aftur fundir.

En ég ætla að labba út í sjoppu og kaupa mér smá nammi og koffín og halda síðan áfram með þetta yndislega próf.

Gleðilegan snjódag!!

27. október 2007 klukkan 20:44
Friends with benefits.

Er það hægt?

Er ekki annar aðilinn ávallt meira en vinur?

Facebook

24. október 2007 klukkan 20:33
Ætla að skella inn einu bloggi hérna. Hitt sem var á undan var eitthvað svo leiðinlegt.

Nýjasta æðið hjá mér í dag er Facebook. Ég semsagt gekk í það samfélag núna í sumar og var ekkert mikið á því en var svona aðeins því gamlir vinir úr Namibíu eru mikið á þessari síðu. Maður fór svona að kíkja oftar en einu sinni í viku og núna er þetta orðið þannig að ég kíkji mörgum sinnum á dag á þessa síðu. Er alltaf eitthvað að fikta í henni. Er samt að reyna að minnka þetta aðeins. En það eru alltaf fleiri og fleiri að koma í þetta samfélag og gaman að endurskapa gömul kynni. Mér finnst þessi vefur alveg frábær og hvet alla til að stofna svona síðu.

Seinasta föstudag var vísindaferð í Orkuveituna og var farið með fornleifafræðinni og þjóðfræðinni. Eftir ferðina var haldið niður í bæ á Hressó og var þar bara mikið stuð og mikið gaman. Mannfræði nemarnir fóru nú að týnast svona einn og einn í burtu þannig eftir voru fornleifafræðinemar, ég og nokkrar stelpur í mannfræðinni sem eru á undan mér í námi. En það var bara gaman og á endanum fór ég á Dillon og hitti þar Vökufólk og var að djamma með þeim. Hitti nokkra gamla félaga þar á meðal Agga ástfangna og Sindra Blondie. Við Aggi sátum á tjatti frekar lengi og svo náði ég að plata hann með að ganga með mér niður að leigurbílaröð. Þar hitti ég Guðrúnu Lilju úr Kvennó og var svaka stuð á stelpunni.

Laugardeginum var eytt í mikla þynnku.

Þessi vika er búin að vera soldið busy en aðeins minna busy en er búið að vera. Ég byrjaði í nýrri vinnu á mánudaginn og leist bara vel á hana og einnig stelpuna sem ég er að vinna með. Verð þarna alltaf á mánudögum og einhverja helgar. En gott að vera komin aftur í barnafatageirann.

Núna á föstudaginn er önnur vísindaferð í Landsvirkjun og eflaust gaman að koma þangað en eftir þá kynningu er ferðinni heitið heim þar sem það er mikill lærdómur framundan og heimapróf í næstu viku.

Annars ætla ég bara að óska Hörpu minni til hamingju með afmælið sem var núna í vikunni og vona að Ólöfu gangi vel í GRE prófinu á laugardaginn.

Hrabba out!

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...