30september

Kvikmyndahátiðin Hrafnhildur

Þessi helgi hefur verið svokölluð bíómyndahátíð. Ekkert rættist úr föstudeginum en á laugardaginn þá var vaknað rétt fyrir hádegi og farið niður og legið í niður og bölvað fjölskyldukaffinu sem við þurftum að fara í. En eftir að horfa á klukkuna líða í rúma þrjá tíma þá ákvað ég að skella mér í sturtu og gera mig til fyrir þetta ættarkaffi. Við Tinna fórum því Bryndís þurfti "allt í einu" að mæta í vinnuna kl 16 í stað kl 18. En allavega við fórum og vorum alveg 45 min of seinast. Það sem kom okkur á óvart var að við fengum ekkert símtal frá pabba eða ömmu um að athuga hvar við værum. En þegar það var komið á staðinn og búið að fá sér kökur og kaffi þá var þetta í lagi og gaman að hitta suma ættingja og aðra ekki. En eftir kaffið þá vorum við Tinna eitthvð að velta kveldinu fyrir okkur. Við ætluðum bara að eiga eitthvað rólegt kveld og vorum að spá hvort við ættum að skella okkur í bíó eða leigja dvd. Við gerðum bara bæði. Hlæjandi Keyptum okkur miða á Astrópíu. Höfum langað að sjá hana en höfum aldrei farið. Myndin byrjaði ekki fyrr en kl 20 og þetta var eitthvað um hálfsjö þannig við ákvaðum að kíkja á videoleiguna líka ef einhverjar skemmtilegar myndir væru inni. Enduðum með að leigja Alpha Dog og Red Eye sem gamla. Við fórum í bíó og mjög skemmtileg mynd hún Astrópía. Ef þú ert ekki búin að sjá hana þá mæli ég með að fara á hana áður en þeir hætta að sýna hana í bíó. Ég er aldrei neitt voðalega hrifin af íslenskum myndum, finnst þær alltaf dimmar, hægar og dauðlegar. En þessi fannst mér mjög skemmtileg. En hún var frekar stutt. Fórum í átta bíó og vorum komnar út fyrir klukkan tíu. En við fórum heim í náttfötin og tilbúnar að horfa á Alpha Dog. Þá var bara eitthvað að disknum og ekkert hægt að horfa á hann þannig við fórum aftur niður á videoleigu og vildum fá nýja en hún var úti þannig við leigðum The Covenant í staðinn. Ef ykkur vantar að horfa á fína spennumynd með fjórum MJÖG sætum strákum þá mæli ég með henni. Í þessari mynd leikur einn gaurinn úr Friday Night Lights sem er sýndur á Skjáeinum. Þessi með síða hárið, anyways mér finnst hann mjög sætur og það var sund atriði í myndinni sem hjálpaði alveg til. Hlæjandi Einnig líka ef einhver er farin að fylgjast með Gossip Girl þá er gaurinn sem leikur Nate líka í þessari mynd. Reyndar bara lítið hlutverk og strákurinn sem leikur aðalhlutverkið er ekki slæmur. Síðan í morgun horfðum við á Red Eye. Orðum það þannig að það verður langt þangað til ég flýg ein. En allar þessar myndir voru skemmtilegar á sinn hátt. Síðan sáum við Tinna alveg fullt af myndum á dvd sem okkur langar að sjá. Einnig var ein í auglýsingunum í bíóinu sem okkur langar að sjá. Hún heitir Stardust minnir mig. Svona ævintýramynd.

Var að koma úr kveldmat. Mjög góður sunnudagsmatur, kjúklingur, salat og kartöflur. Er svo södd að ég gæti dáið. Er að reyna læra eitthvað því ég hef ekki opnað bók alla helgina. En það gengur eitthvað brösulega. Ótrúlegt hvað maður getur fundið sér mikið annað að gera heldur en að læra. En held að þetta sé nóg hjá mér í bili.

Hrabba out!!
30. september 2007 klukkan 19:15
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
28september

Færsla um ekki neitt

Skilst að það er komið tími á nýtt blogg. Ákvað að breyta smá útlitinu komið óendanlega leið á bleiku. Þessi vika er búin að vera eitthvað þvílíkt ringleiða. Þetta byrjaði allt saman á sunnudaginn þegar pabbi og co komu til landsins. Ekkert að því voða gaman að sjá þau og svona. Þau lentu um tíu leytið á sunnudagsmorgunininn og við systurnar brunuðum upp á flugvöll til að sækja þau. Þau voru soldið lengi að koma sér út úr flughöfninni en komu á endanum. Eftir að allir heilsuðust þá var farið til ömmu og afa þar sem hún var búin að búa til svakalegt brunch borð. Mjög fínt að fá eitthvað í gogginn. Við Tinna ákváðum að fara eftir hádegi heim til að læra aðeins og leyfa þeim að leggja sig vegna þess að um kveldið var von á öllum systkinum pabba og börnum þeirra í mat. Það var matur seinni partinn þannig við fórum aftur til ömmu og afa að borða.

En enough about that. Vikan er búin að vera þannig að ég hef verið að mæta í skólann, læra þegar ég hef tíma og hitta pabba og þau þegar þau hafa tíma og eru ekki í einhverjum boðum. Það er ótrúlegt hvað fólk verður gestrisið þegar maður fær svona gesti. Fólk sem maður hefur ekki talað við í mörg ár eru að bjóða manni í mat. Leiðist svona matarboð nema ef það er skemmtilegt fólk. En það hefur samt verið mjög gaman að hitta þau. Pabbi og Ludene eru alltaf söm. Thomas er orðin 7 ára og farin að tala almennilega, æfir fótbolta og heldur með Chelsea og talar um voða annað nema þá bíla. Ardís er rúmlega tveggja og háls og er svo sæt að greyið á eftir að lenda í strákavesenum þegar hún verður eldri. En hún er alveg ótrúlega frek að það er einum og stundum. En hún er svona eins og lítil kona, hún er svo mikil stelpa alltaf í bleiku með fullt af skartgripum og pælir í öllu saman. Síðan er eitt að hún þagnar aldrei. Hún er alltaf talandi og talar ágætlega skýrt. Mjög skemmtilegur krakki en held að hún verði ótrúleg gelgja þegar kemur að því.

Við Tinna fórum í bíó um daginn á Hairspray. Hún var alveg rosalga skemmtileg og mæli með henni í bíó.

Í gær var bjórkveld á Barnum hjá mannfræði og þjóðfræðinni. Heppnaðist það bara vel og var fullt af fólki. Flestir á eldri árunum eru búin að vera út í útlöndum í skiptinámi en eru að láta sjá sig núna og það er rosalega gaman.

Í kveld á að vera stelpuhittingur hjá Eddu og vonandi verður mjög gaman. Síðan á morgun er einhver ættarhittingur. Þekki eiginlega engan af þessu fólki en hlakka til að hitta hana Rebekku og spjalla við hana.

Held að þetta sé nóg í bili. Hrabba out!
28. september 2007 klukkan 14:41
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
18september

Hrabba klaufabárður!!!

Þessi dagur ætlar að aldrei að taka á enda. Þessi dagur er búin að vera hræðilegur. Yfirleitt myndi segja að ég væri frekar heppin manneskja. Hef aldrei lent í neinum svakalegum vandræðum og allt sem að ég legg mér fyrir hendur heppnast ágætlega. Heppin svona almennt en ekkert súperheppin í sumum málum.

En allavega dagurinn í dag byrjaði þannig að dyrabjöllunni var hringt klukkan átta í morgun. Þá voru það verkamennirnir sem vildu komast inn svo þeir gætu haldið áfram að vinna. Ekkert mál opnaði fyrir þeim og hreytti í þá góðan daginn. Rett eftir að ég var búin að opna fyrir þeim byrja þeir að bora og allan fjandann. Ég endurstilli klukkuna og ætla að sofa til 10 og næ að sofna í öllum þessum hávaða. Vakna en fer ekki á fætur fyrr en klukkan hálf ellefu og ennþá óviss hvort ég eigi að nenna í tíma að vera bara heima í dag þar sem ég var ekkert voðalega upplögð að fara í skólann. Ég hefði átt að vera heima og liggja upp í rúmi í allan dag. Rétt fyrir hálf tólf hendist ég út þar sem ég var orðin sein. Samlæsingin á bílnum virkar ekki sem er mjög furðulegt því hún virkar alltaf. En skiptir engu. Starta bílnum eða reyni það og heyrist bara eitthvað skrítið klikk hljóð í mælaborðinu. Ekkert gerist. Bíð og prófa að starta aftur...enn ekkert gerist. Demitt bílinn er rafmagnslaus. Ég hafði gleymt ljósinu sem var inn í bílnum og hann greinilega bara ný orðin rafmagnslaus. Ég hóa í verkamennina og spyr hvort einhver er með startkappla. Einn af þremur er með hann og ég bið hann um hjálp. Hann gefur mér start og bílinn fer strax í gang. Æðislegir þessir verkamenn þótt þeir vekji mann á morgnanna. Heppnin er kannski ekki alveg búin því þegar ég kom heim úr skólanum voru þeir búnir með verkið og horfnir á bak og burt.

Eins gott að þetta gerist ekki aftur á morgun. En bílinn komst í gang og ég komst í skólann reyndar of seint. Síðan kemur hlé í tímanum og ég ákveð að fara niður á kaffistofu til að fá mér kakó því það var svo kalt inn í skólastofunni. Þegar ég er að setja lokið á plastmálið þá rennur það til og ég helli niður heitu kakó um alla kaffistofuna í Aðalbyggingu. Með því að reyna þurrka þetta upp þá myndast stór röð og ekkert nema stjórnmálafræðinemar. Ekki gaman. En þetta heppnaðist og tíminn kláraðist.

Fer í næsta tíma og þar næstum því henti ég tölvunni minni í gólfið. Kláraði tímann og ákvað að fara heim þar sem ég myndi vera minni slysahætta.

Þótt þetta var ekki mikið sem gekk á afturfótunum þá samt voru þetta stórir hlutir. Þoli ekki svona klaufahluti hjá manni. Er bara fegin að þessi dagur er samt bráðum á enda.

Sit núna við lærdóminn og vona að þessir þrír og hálfur tími fram að miðnætti gangi hættulausir fyrir sig.

Hrabba out!
18. september 2007 klukkan 20:26
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
4 athugasemdir
16september

Busy like a bee

Komiði sæl og blessuð

Seinasta vika hefur verið busy og eins með helgina. Er enn að reyna koma mér í lærdómsgírinn en það gengur frekar hægt. Líka hérna heima er búið að vera ekkert nema vinnumenn alla vikuna að skipta um glugga og setja nýja inn og laga í kringum þetta. Þannig það hefur ekki verið lærdómsfriður undafarið.

Homo félagið er farið á stað og lýst mér bara vel á þennan vetur. Hressar stelpur komnar inn í starfið þannig við Birna ættum ekki að þurfa að hafa áhyggjur af þessum vetri. Edda líka á eftir að standa sig frábærlega sem formaður. Allavega byrjar þetta glæsilega hjá stelpunni henda hörkukvendi.

Pabbi og Co koma næstu helgi. Koma á sunnudeginum eða réttara sagt sunnudagsmorgun. Hlakka til að sjá þau! Þau verða í þrjár vikur og það verður mikið að gera meðan þau verða hér. Ætlaði að vera búin að vera duleg að læra áður en þau komu en er ekki alveg að sjá það gerast.

Herbergið mitt er að komast í almennilegt stand eins og ég vildi. Komin með hillu en á bara eftir að fara yfir hluti sem ég vil hafa í henni. Vantar í raun enn lampann sem ég sá og á eftir að kaupa. Fataskápurinn er tómlegur en það reddast yfir veturinn.

Jæja ætla að koma mér í lærdóminn.
16. september 2007 klukkan 16:02
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
Engin athugasemd
09september

Fyrsta mæting á Hlöðuna í vetur

Komið sæl og blessuð

Helgin er búin að vera frekar busy. En með góðum letiköstum inn á milli.

Byrjum bara á byrjun.

Fimmtudagur var jarðaför og síðan var nýnema bjórkveld um kveldið hjá Homo en ég fór ekki. Var bara heima.

Föstudagur var borðasetja að kynna Vöku fyrir nýnemum og öðrum nemendum og gekk það bara vel. Síðan hitti ég hana beloved Röggu mína sem ég er ekki búin að hitta súper dúper lengi og við fengum okkur mjög góðan hádegismat á Adesso í Smáralind. Ég fékk mér Crepes en Ragga fékk sér eitthvað kjúklingasalat sem var mjög girnilegt og hún mælir með. Síðan var verslað og ekki lítið. Keypti mér mjög flottan jakka í Zöru og einhverjar peysur. Síðan var komið heim seinnipartinn og ég sem ætlaði að nýta daginn í að læra. En þetta var Ragga þannig mér er í raun fyrirgefið. Um kveldið var ég eitthvað svo þreytt að ég nennti ekki að gera neitt nema liggja og horfa á Imbann. Horfði á úrslita þátt So you think you can dance og bíómynd með mr sexy Vin Diesel.

Laugardagurinn þá var ég vöknuð bara um níu og ætlaði að byrja að læra en fór niður og endaði deginum upp í rúmi hjá Tinnu að horfa á Dr. Phil. Gerði mjög mikið þann dag. Nei nei fór reyndar í fjáröflun fyrir Vöku. Síðan var Vökupartý sem ég fór í og var bara mjög gaman. Vorum að opna nýja heimasíðu http//:www.vaka.hi.is og ég mæli með að allir kíki á hana. Mjög flott síða. Ég reyndar var bara á bíl og var komin snemma heim. En var vakin kl 3 þegar ákveðnir aðilar gleymdu lyklum. Öskrandi

Í dag vaknaði ég um 11 og var komin niður á Hlöðu fyrir 12 og er búin að gera eitt verkefni og skrifa fullt af emailum. Ætla að byrja að lesa almennilega.

Síðan í kveld er það The Tudors. Uppáhaldsþættirnir mínir í augnablikinu.

Hrabba out!

09. september 2007 klukkan 14:17
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
06september

Dánarfregnir og jarðafarir

Afi minn, Matthías Karelson var jarðaður í dag 6 september. Hann lést í Svíþjóð í ágúst síðastliðnum. Hann er faðir móður minnar og mig langar að votta henni og systkinum hennar virðingu mína. Vona að þau geti unnið úr sorginni sem hvílir yfir öllum í þessu ferli.

Ég vona að Mattías hvíli í friði hvar sem hann er.
06. september 2007 klukkan 23:43
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
Engin athugasemd

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...