31desember

Gamlárskveðja

Sit hérna upp í sófa að springa eftir að hafa borðað gómsætan kjúklingarétt sem ég og mamma hjálpuðumst við að elda. Dagurinn í dag er búinn að vera frekar langur þar sem ég náði ekki að sofna neitt í nótt og þurfti svo að fara vinna klukkan hálf tíu í morgun. Var á vakt til klukkan eitt og var það bara fínt. Frekar lítið að gera þannig ég náði að taka búðina alveg í gegn, taka til, breyta soldið og gera hana fína fyrir nýja árið.

Var að taka núna einn blogg hring og sé að margir eru búnir að taka soldin annál fyrir árið. Ég ætla nú ekki að gera það enda hefur þetta ár verið eitthvað ótrúlega upptekið hjá mér en ég ætla samt að telja upp hápunktana á mínu ári.

Sá fyrsti er eflaust að hafa verið dregin inn í Vöku þar sem ég hef kynnst alveg frábæru fólki og hef gert ýmisleg störf. Næsti hápunkturinn er Berlínarferðin mín þegar ég fór að heimsækja hana Eddu mína. Það var rosalega gaman, ofboðslega heitt en samt alveg þess virði. Síðan var þegar pabbi kom til Íslands núna í september. Það var líka alveg frábært.

En ég ætla bara að segja gleðileg nýtt ár.

Hrabba 2007 out!
31. desember 2007 klukkan 19:59
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
2 athugasemdir
24desember

Jólakveðja




Gleðileg jól!!

Kv. Hrafnhildur


24. desember 2007 klukkan 12:14
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
3 athugasemdir
12desember

Blá á marin en með nýja klippingu

Ég fór í klippingu í morgun og þar sem ég er enn á sumardekkjum þá keyrði ég mjög varlega þar sem það virtist vera mjög mikil hálka. Svo virtist ekki vera á vegum borgarinnar. Ég kem fyrir utan stofuna og legg. Engin snjór er í kring og malbikið virðist bara vera blautt. Ég stíg út úr bílnum og renn beint niður á götuna. Lenti frfekar harkalega á vinstri mjöðm. Reyni að standa upp en renn alltaf aftur niður þannig ég er orðin geggjað blaut og frekar pirruð. Heng svona í bílhurðinni sem var alltaf að slást utan í næsta bíl. Sem betur fer var það jebbi sem var með svona plast til að stíga á þannig hurðin mín fór bara í það. Einhvern veginn næ ég að standa upp en öll rennblaut og mjög aum. Ég lít í kring um mig og vona að enginn hafi séð þetta. Sá allavega engan en hver veit hver hefur verið að líta út um gluggann í kring. Ég fer í klippingu og svo kem ég út og labba mjög varlega og er að stíga inn í bílinn en þá renn ég aftur og dett sem betur fer inn í bílinn en ekki á götuna.

Mér fannst þetta ekkert fyndið þegar þetta gerðist, öll blá og geggjað aum en núna þegar ég er að skrifa þetta þá get ég varla gert annað en að hlæja og ég vona að einhver hafi séð þetta og geta hlegið innilega.

Bara heppinn að vera ekki mjaðmabrotinn eða eitthvað. En ef þið sjáið einhverja í sundi með stóran marblett á vinstri hliðinni þá viti þið að það er ég Hlæjandi
12. desember 2007 klukkan 15:48
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
4 athugasemdir
11desember

Mannfræði þróunar

Seinustu dagar hafa ekki verið miklir lærdómsdagar hjá mér. Var að vinna á laugardaginn en vaknaði samt snemma til að lesa eina grein. En var að vinna alveg til klukkan ellefu um kveldið þannig ég hafði enga orku til að lesa. Síðan á sunnudaginn var á á bakvakt en var með eitthvað svo miklar áhyggjur um hvort þau myndu hringja eða ekki þannig ég var ekki að koma mér í lærdómsstuðið. Mánudagurinn fór í svefn og svo vinnu. En þetta hefur bara verið skemmtileg helgi. Mikið að gera þannig þetta leið hratt.

Á föstudaginn vorum við Tinna bara heima og læra og svo ákváðum við að horfa á sjónvarpið um kveldið og vorum búnar að koma okkur vel fyrir en verður þá ekki rafmagnslaust. Ekki gaman. Allt Seljahverfið varð rafmagnslaust og það var svo svart að við sáum ekki handa okkar skil. En kveiktum bara á kertum og höfðum það kósý og horfðum bara á mynd í tölvunni.

Svefninn hefur haft yfirhöndina undafarna daga en svefnmynstrið mitt er komið í algera klessu. Sofna seint vakna seint bara eins og gengur og gerist í prófum.

Vaknaði snemma í morgun og þurfti að fara á skorarfund en í raun hélt áfram að sofa þar....bara með opin augun.

Ég ætla að taka daginn í dag og morgundaginn í mannfræði þróunar. Ekki auðveldasta lesning í heimi þannig að .... ætlaði bara að heilsa og hafa eitthvað annað en þessa Mozart færslu.

Hrabba out.
11. desember 2007 klukkan 15:04
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
1 athugasemd
05desember

Mozart á miðnætti

Klukkan hálf eitt í nótt voru tvö hundruð ár síðan að Mozart dó. Í tilefni þessa atviks þá var Óperukórinn í Reykjavík ásamt lítilli sinfóníuhljómsveit með miðnætur tónleika í Langholtskirkju í gær. Það var flutt verkið Requiem en það er seinasta verkið sem hann samdi og í raun verkið sem hann náði ekki að klára. Við Tinna fórum á þessa tónleika, þeir stóðu nú frekar stutt eða í rúmlegar 50 mínútur og frá fyrstu mínútu þá var ég með gæsahúð. Þetta var svo flott. Svona mikið og dramatískt verk ekki hefðbundin ópera. Væri alveg til í að sjá þetta verk með stærri kór og miklu stærri hljómsveit. Þótt að þetta voru ekki jólatónleikar þá voru þetta jólatónleikarnir fyrir okkur Tinnu í ár. Þetta var alveg æðislegt.

Prófalesturinn gengur frekar hægt hjá mér en þetta er allt að koma. Er að vinna um helgina þannig það verður lítið lært þá en annars er ég bara heima þessa daganna að læra eða reyna það. Vona að öllum gangi vel.

Hrabba out!
05. desember 2007 klukkan 20:30
Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Hrafnhildur Eyjólfsdóttir
  • Netfang: hre1@hi.is

Auglýsing

Dragon Wisdom

The noble savage....

Klukkan

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...